Kokteilameistarar koma í heimsókn
Það stendur mikið til á Edition-hótelinu í miðborg Reykjavíkur um helgina en þá er von á góðum gestum frá hinum þekkta bar Himkok í Osló. Óhætt er að segja að áhugafólk um góða kokteila fái þar áhugaverða tilbreytingu.
Alls koma þrír barþjónar frá Himkok hingað. Einn þeirra er stofnandi staðarins, Paul Aguilar. Með í för verða svo þeir Nicola Galanducci og Frederico Biserni.
Þeir félagar verða á Edition bæði föstudags- og laugardagskvöld. Á föstudag verða þeir á ROOF-barnum og á laugardag á kokteilbarnum Tölt. Við þetta tækifæri mun Lost Explorer, í samstarfi við Himkok, kynna á markað nýtt reposado-tekíla.
Himkok var opnaður í Osló árið 2015 og hefur vakið alþjóðlega athygli fyrir frumlega kokteila og áhugaverða hugmyndafræði. Staðurinn hefur verið á lista yfir 50 bestu bari heims 11 ár í röð. Hann er þriðji besti barinn í Evrópu.
内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


