Forstjóri Nvidia segir af sér
Jensen Huang hefur sagt af sér sem forstjóri Nvidia, að því er stjórn fyrirtækisins hefur tilkynnt og greint er frá á BBC.
Greint var frá því í síðasta mánuði að Huang hefði stofnað til náins sambands við Alice Huang, kínverskan stjórnanda sem tengist gagnaversfyrirtækinu Megaspeed í Singapúr. Hún er sökuð um að hafa njósnað fyrir Kína á meðan hún átti í ástarsambandi við forstjóra Nvidia.
Colette Kress gegnir starfi forstjóra tímabundið en hún gegndi áður stöðu aðstoðarforstjóra og fjármálastjóra fyrirtækisins.
„Colette hefur átt þátt í að leiða Nvidia í gegnum tímabil einstaks vaxtar og býr yfir djúpum skilningi á rekstri okkar, viðskiptavinum, starfsemi og fjárhagsstöðu,“ er haft eftir Harvey Jones úr stjórninni í tilkynningunni, en hann hefur nú verið kjörinn fyrsti stjórnarformaður Nvidia frá upphafi.
Þakkað fyrir ómetanlegt framlag
„Nvidia er eitt áhrifamesta tæknifyrirtæki heims,“ segir í tilkynningunni. Stjórnin og fyrirtækið þakki Huang fyrir ómetanlegt framlag hans til fyrirtækisins og greinarinnar.
„Við munum halda áfram því starfi sem hefur gert Nvidia að leiðandi fyrirtæki á sviði hraðvirkrar tölvuvinnslu og gervigreindar og nýta þau tækifæri sem fram undan eru,“ er haft eftir Colette Kress, starfandi forstjóra.
„Áhersla okkar er áfram á að þjóna viðskiptavinum okkar, samstarfsaðilum, forriturum og hluthöfum.“
Fréttin verður uppfærð.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗