Pútín segir erlent herlið í Úkraínu þýða „framhald stríðsins“
Vladimír Pútín Rússlandsforseti fundar með bandarískum sendimönnum í Moskvu í dag. Með honum er Júrí Úsjakov, ráðgjafi rússneskra stjórnvalda í utanríkismálum. Sendimennirnir, Jared Kushner, tengdasonur Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, og kaupsýslumaðurinn Steve Witkoff, komu til fundarins að loknum viðræðum í Abú Dabí um stríðið í Úkraínu. AFP
Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagði í dag að vera erlends herliðs í Úkraínu myndi fela í sér „framhald stríðsins“.
Hann lagði jafnframt til mannúðaraðgerðir í bænum Kostjantínivka í austurhluta landsins, þar sem hann segir hundruð almennra borgara enn dvelja.
Volodimír Selenskí Úkraínuforseti hvatti á sama tíma Evrópuríki til að fylgjast grannt með viðræðum Bandaríkjanna og Rússlands um nýtt fyrirkomulag öryggismála í Evrópu.
Segir 400 til 500 borgara enn í bænum
Pútín ræddi tillögu sína að mannúðaraðgerð á fundi með bandarískum sendimönnum í Moskvu. Rússnesk stjórnvöld sögðust hafa náð Kostjantínivka á sitt vald í júlí.
„Þar eru enn um 400 til 500 almennir borgarar,“ sagði Pútín.
Hann lagði til að farið yrði að með sama hætti og í Oleskí, bæ sem Rússar ráða yfir. Vopnahlé sem Bandaríkjamenn höfðu milligöngu um í síðasta mánuði gerði hundruðum almennra borgara, sem höfðu verið þar innlyksa, kleift að yfirgefa bæinn.
Evrópa þurfi að fylgjast grannt með
Selenskí ávarpaði evrópska leiðtoga á leiðtogafundi í Dyflinni í dag. Hann hvatti Evrópuríki til að vera á varðbergi gagnvart viðræðum Bandaríkjanna og Rússlands um nýja öryggisskipan í álfunni.
„Við bíðum frekari upplýsinga og Evrópa þarf að fylgjast grannt með,“ sagði Selenskí.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗