Vörður fellur frá áfrýjun í máli slasaðs farþega
Aðilar náðu samkomulagi um greiðslu skaðabóta í samræmi við matsgerð dómkvaddra matsmanna sem aflað var við meðferð málsins í Landsrétti. mbl.is/Golli
Vörður tryggingar hefur fallið frá áfrýjun í máli manns sem varð fyrir líkamstjóni þegar pallbíl, sem hann var farþegi í, var bakkað á stólpa við eldsneytisdælur.
Aðilar náðu samkomulagi um greiðslu skaðabóta í samræmi við matsgerð dómkvaddra matsmanna sem aflað var við meðferð málsins í Landsrétti.
Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður viðurkennt bótaskyldu Varðar. Tryggingafélagið hafði hafnað henni með vísan til þess að áreksturinn hefði verið mjög vægur og ósannað væri að hann hefði valdið manninum líkamstjóni.
Landsréttur felldi málið niður með úrskurði í gær eftir að félagið féll frá áfrýjuninni. Rétturinn tók því ekki efnislega afstöðu til ágreiningsins.
Bakkaði á stólpa eftir matarhlé
Óhappið varð 20. febrúar 2024 við bensínstöð á Ártúnshöfða. Maðurinn var ásamt þremur vinnufélögum á pallbíl sem þeir notuðu við vetrarþjónustu á götum Reykjavíkur.
Þegar lagt var af stað eftir matarhlé þurfti ökumaðurinn að gæta að vöruflutningabifreið á planinu. Hann bakkaði á stólpa sem hann kvaðst ekki hafa séð vegna saltkassa á palli bílsins. Hann áætlaði að hraðinn hefði verið einn til fjórir kílómetrar á klukkustund.
Maðurinn sat í aftursæti og leitaði læknishjálpar án tafar eftir óhappið. Hann var greindur með verki og tognun í baki. Hann hafði áður lent í umferðarslysi árið 2018 og bjó við varanlegar afleiðingar þess.
Útreikningar höfðu takmarkað sönnunargildi
Vörður studdist meðal annars við svokallaða PC-Crash-útreikninga til stuðnings því að áreksturinn hefði verið of vægur til að valda líkamstjóni.
Héraðsdómur taldi útreikningana hafa takmarkað sönnunargildi. Þeir tækju meðal annars ekki tillit til læknisfræðilegra gagna og líkamlegs ástands mannsins. Við mat á afleiðingum slyss þyrfti að horfa til einstaklingsbundinna aðstæðna, meðal annars þess hvort viðkomandi hefði verið viðbúinn högginu. Bæði maðurinn og ökumaðurinn hefðu borið að áreksturinn hefði komið þeim á óvart.
Með hliðsjón af læknisvottorðum, samantekt sjúkraþjálfara og matsgerð taldi héraðsdómur manninn hafa sannað að hann hefði orðið fyrir bótaskyldu líkamstjóni. Málið snerist um viðurkenningu bótaskyldu en ekki ákvörðun bótafjárhæðar. Því þurfti ekki að taka endanlega afstöðu til umfangs tjónsins.
Bótaskylda Varðar var viðurkennd með dómi 20. janúar og félaginu gert að greiða manninum 2,5 milljónir króna í málskostnað.
Samkomulag eftir nýtt mat
Vörður áfrýjaði dóminum í febrúar. Við meðferð málsins í Landsrétti voru dómkvaddir matsmenn og barst matsgerð þeirra réttinum í október.
Þann 9. nóvember tilkynnti félagið að samkomulag hefði náðst um greiðslu málskostnaðar samkvæmt héraðsdóminum og skaðabóta í samræmi við nýju matsgerðina. Fjárhæð bótanna kemur ekki fram í úrskurði Landsréttar.
Verði var gert að greiða 700 þúsund krónur í málskostnað fyrir Landsrétti, sem renna í ríkissjóð. Gjafsóknarkostnaður mannsins greiðist úr ríkissjóði, þar á meðal 700 þúsund króna málflutningsþóknun lögmanns hans.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/6/64/664557.jpg)