Carrick bað um fjóra leikmenn en fékk engan
Knattspyrnustjórinn Michael Carrick fór fram á það við forráðamenn Manchester United að félagið myndi kaupa fjóra leikmenn í félagaskiptaglugganum í sumar.
Það er fjölmiðlamaðurinn Henry Winter hjá Talksport sem greinir frá þessu en leikmennirnir sem um ræðir eru þeir Elliot Anderson, Lewis Hall, Morgan Rogers og Mateus Fernandes.
Anderson fór til Manchester City fyrir 114 milljónir punda, Rogers fór til Chelsea fyrir 115 milljónir punda, Fernandes fór til Tottenham fyrir 85 milljónir punda og Hall framlengdi samning sinn við Newcastle.
Í staðinn eyddi félagið meira en 150 milljónum punda í þá Andrey Santos, Carlos Baleba og Youri Tielemans.
Carrick var sagt upp störfum hjá United í morgun eftir tæplega ellefu mánuði í starfi en Winter segir að forráðamenn United verði einnig að axla ábyrgð þegar kemur að gengi liðsins á tímabilinu sem hefur ekki verið gott.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗