Gunnar Smári opnar sig um erfið veikindi undanfarinna vikna – „Það tók um þrjá og hálfa mánuði að finna meinið“

Kristinn H. Guðnason

Fimmtudaginn 12. nóvember 2026 13:42

Gunnar Smári hefur verið að glíma við heilsubrest.

Gunnar Smári Egilsson, fjölmiðlamaður á Samstöðinni, greinir frá erfiðum veikindum sínum að undanförnu. Segir hann að langur biðlisti hafi og niðurskurður í heilbrigðiskerfinu setji stórt strik í hans bataferli.

Í færslu á samfélagsmiðlum greinir Gunnar Smári frá því að dagarnir séu skrýtnir hjá honum núna, hann sé verkjaður og sofi lítið og í bútum.

„Ég ætti að vera í endurheimt eftir hjartabilun en get lítið hreyft mig, geng við hækju út á stoppistöð til að komast í vinnu. Þar sit ég og tala við fólk, þakka fyrir að líða einna best sitjandi. Röðin mín er: Sitja, liggja (fáar stellingar eftir), ganga, standa kjur,“ segir hann.

Þá hafi bið og erfiðleikar við greiningar haft mikið að segja.

„Það tók um þrjá og hálfa mánuði að finna meinið,“ segir Gunnar Smári. „Ég var í bið eftir viðtali við lækni til að fá myndatökur, bið eftir myndatökum og bið eftir að einhver læsi úr myndinni. Ef ekkert fannst þá byrjaði ég aftur á byrjunarreit. Loks kom niðurstaðan um töluverðar þrengingar í spinal canal L4/L5 vegna central aftanbungu liðþófa og slitbreytingar í facettuliðum. Svona er íslenskan í heilbrigðiskerfinu. Snorri Másson hlýtur að vera á leið upp í pontu á þinginu til að kenna innflytjendum um.“

Svefn og hreyfingarleysi

Ein kenningin er sú að þetta hafi tekið sig upp þegar verið var að færa hann svæfðan upp á eða ofan af skurðarborði. Hann hafi þrisvar verið svæfður síðan um páska og hefur versnað í hvert sinn. Hann segist hafa orðið haltur eftir fyrstu aðgerðina, draghaltur eftir aðra og sárkvalinn eftir þá þriðju.

Sjá einnig:

Gunnar Smári deilir alvarlegum fréttum af heilsu sinni

„Mér er sagt að þegar maður hefur verið svæfður séu allir vöðvar slakir og þá geti sitthvað tekið sig upp eða farið úr lagi í hryggnum þegar verið er að færa mann til. Ég kom þannig út að eitthvert taugadrasl sem hangir neðan úr mænunni klemmist svo að mig verkjar í mjöð og niður eftir læri,“ segir hann. „Ég er nú einhvers staðar á bið eftir sterasprautum sem gætu gefið mér frí frá sársaukanum í nokkrar vikur. Ég myndi gjarnan þiggja það, finn hvernig svefn- og hreyfingarleysið eru að draga mig niður. Fylgist með svefnleysinu skaða minnið. Finn hvernig hreyfingarleysið dregur úr mér þrótt. Komst varla upp um tvær hæðir neðan úr þvottahúsi í gær, var alvarlega að hugsa um að setjast í tröppurnar og sjá til.“

Lengja biðlista til að lækka skatta á auðuga

Þá er hann einnig á sex til tólf mánaða biðlista eftir meðferð á bakdeild á Stykkishólmi. Þar voru eitt sinn 13 rúm en eru nú 5, eftir niðurskurð í kjölfar skattalækkana á hina auðugu og til fyrirtækja. Biðlistinn hefur lengst úr 6 vikum í 1 ár.

„Svona er heilbrigðiskerfið fullt af fólki á biðlistum sem þjáist mánuðum og árum saman. Það gerir það svo að hin allra best settu geti keypt sér 100-150 fermetrum stærra einbýlishús og fjórða og fimmta bílinn. Og talsmenn hinna auðugu belgja sig út í pontunni á þinginu yfir fjölgun öryrkja, sem fyrst og síðast má rekja til tafa á meðferð innan heilbrigðiskerfisins,“ segir Gunnar Smári ómyrkur í máli.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅