Segja hlaðvörp víst falla undir fjölmiðlalög en benda Loga á vald hans

Fjölmiðlanefnd hefur opinberað bréf sem hún sendi undir lok síðasta mánaðar til Loga Más Einarssonar, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Í bréfinu færir nefndin rök fyrir því og stendur við fyrri yfirlýsingar sínar þar um að hlaðvörp heyri undir fjölmiðlalög og teljist skráningarskyld sem fjölmiðlar. Bendir nefndin ráðherranum þó á að hann hafi samkvæmt lögunum heimildir til að setja reglugerðir, þar á meðal um útfærslu á skráningu hlaðvarpa.

Sendir nefndin bréfið í kjölfar umræðu um hvort hlaðvörp teljist vera fjölmiðlar og eigi því að vera skráð með þeim hætti hjá Fjölmiðlanefnd. Stjórnendur sumra af vinsælustu hlaðvörpum landins hafa borið sig illa gagnvart kröfum Fjölmiðlanefndar og hafnað því að þeir séu að halda úti fjölmiðlum. Umrædd hlaðvörp eiga það flest sameginlegt að í þau er iðulega boðið gestum og í þeim birtar auglýsingar. Stjórnendurnir vilja þó ekki meina að það dugi til að skilgreina hlaðvörp þeirra sem fjölmiðla. Funduðu sumir þeirra nýlega með Loga sem virtist að einhverju leyti taka undir með þeim.

Skráning

Í bréfi Fjölmiðlanefndar til Loga segir að nefndin telji lög um fjölmiðla skýr. Hlaðvörp geti talist vera fjölmiðlar og fallið því undir lögin, enda séu fjölmiðlalög ekki bundin við ákveðna tækni. Þessi lagatúlkun hafi verið staðfest af dómstólum. Uppfylli hlaðvörp hugtakaskilyrði laganna séu þau skráningarskyld. Í lögunum sé raunar að finna ákvæði um skilgreiningu á hugtakinu hlaðvarp.

Nefndin undirstrikar að hún telji að framkvæmd og túlkun við skráningu fjölmiðla, þar með talið hlaðvarpa, sé í fullu samræmi við gildandi lög og lögskýringargögn.

Nefndin segir í bréfi sínu til Loga að nefndarmenn hafi orðið varir við ýmis ummæli hans í fjölmiðlum sem gefi tilefni til að minna á að samkvæmt fjölmiðlalögum geti ráðherrann sett reglugerðir, með nánari ákvæðum um framkvæmd laganna í heild eða einstakra ákvæða þeirra. Í lögunum sé raunar sérstaklega tekið fram að í reglugerð megi útfæra nánar tilhögun skráningar fjölmiðlaveitu. Slíka heimild megi nýta til að skýra nánar fyrirkomulag við skráningu hlaðvarpa.

Minnt er þó að samkvæmt fjölmiðlalögum þurfi að afla tillagna Fjölmiðlanefndar áður en að setningu reglugerðar, á grundvelli þessarar heimildar í lögunum, kemur.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅