Hvetja til varúðar vegna hættu á flughálku
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvetur vegfarendur til að fara varlega í umferðinni í dag. Snjóað hefur á höfuðborgarsvæðinu og víðar og hætta er á frostrigningu og flughálku á köflum á suðvestanverðu landinu.
„Farið varlega í umferðinni í dag sem og alla aðra daga,“ segir í skilaboðum lögreglunnar á Facebook
Í morgun var greint frá því snjókoma yrði á vestanverðu landinu en úrkoman breyttist í slyddu eða rigningu á láglendi síðdegis, samhliða hlýnandi veðri.
Kalt loft gæti setið eftir
Í tilkynningu lögreglu segir að vindur sé svo hægur að hann nái sums staðar ekki að ryðja kalda loftinu frá. Þar sem úrkoman haldi áfram gæti því komið frostrigning.
Líkur eru á flughálku á köflum á suðvestanverðu landinu, einkum í uppsveitum sunnan- og vestanlands. Einnig gæti orðið flughált á stöku stað um tíma á Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗