Lögreglan fær 2-3 auka vikur í manndrápsmáli
Pólskur karlmaður var drepinn í heimahúsi í Vallargerði á Kársnesi í Kópavogi í ágúst. mbl.is/Birta Margrét Björgvinsdóttir
Tveir pólskir ríkisborgarar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald í tengslum við manndráp pólsks karlmanns í Vallargerði á Kársnesi í ágúst. Þeir hafa báðir verið í haldi í meira en 12 vikur, en almennt þarf að gefa út ákæru í máli fyrir þann tímafrest ef halda á mönnum í varðhaldi. Í þessu tilfelli fær lögreglan þó auka 2-3 vikur þar sem mennirnir voru upphaflega handteknir erlendis.
Sakborningarnir eru á fertugs- og fimmtugsaldri.
Annar þeirra verður í varðhaldi til 20. nóvember og hinn til 26. nóvember. Þá verða liðnar um 12 vikur síðan þeir voru færðir hingað til lands frá Póllandi og Spáni og úrskurðaðir í gæsluvarðhald.
Manndrápið átti sér stað laugardaginn 9. ágúst og voru handtökur hér á landi meðal annars þriðjudaginn 11. ágúst. Þá voru tvímenningarnir handteknir 12. ágúst, en voru í haldi erlendra yfirvalda í nokkurn tíma áður en þeir voru fluttir til landsins. Ef miðað væri við 12. ágúst hefði 12 vikna tímaramminn klárast 4. nóvember.
Hófst þegar þeir komu til landsins
Að sögn Ævars Pálma Pálmasonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, þarf ákæruvaldið að vera búið að ákveða hvort það gefur út ákæru á hendur mönnunum þegar 12 vikna gæsluvarðhaldið er að renna út. Hann útskýrir að miðað sé við að 12 vikna tímabilið hafi hafist þegar mennirnir komu hingað til lands, en það sé samkvæmt dómaframkvæmd.
„En það eru fordæmi fyrir því í umfangsmiklum málum að þegar það eru brýnir rannsóknarhagsmunir hefur fólk verið úrskurðað lengur, umfram 12 vikurnar. Það er heimild fyrir því í sakamálalögum,“ greinir Ævar Pálmi frá.
Það er síðan mat dómara hverju sinni hversu lengi þessi viðbótartími getur orðið.
Ævar segir rannsókninni miða ágætlega áfram. Enn sé þó beðið eftir gögnum, þar á meðal lífsýnum.
„Þetta er mjög umfangsmikil rannsókn og við erum enn að bíða eftir hluta gagna en það er farið að sjá aðeins fyrir endann á því,“ segir hann.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
