Tíu milljónir fyrir laxveiði í tvo daga
Uppboð í fullum gangi í Osló í gærkvöldi. Hér er boðið upp veiðileyfi í Stjördalselva í Noregi. Hápunktur kvöldsins var uppboð á tveggja daga veiðileyfi í Alta. Ljósmynd/Andreas Fredrik Thoresen
Hæsta upphæð sem sögur fara af var greidd fyrir laxveiðileyfi á uppboði í Noregi í gær. Stöng í tvo daga í hinni rómuðu laxveiðiá, Alta fór á 800 þúsund norskar krónur. Það lætur nærri að vera 10,3 milljónir íslenskra króna. Dagurinn leggur sig því á rúmar fimm milljónir. Það er líkast til tífalt verð sem greitt er fyrir veiðileyfi í bestu íslensku ánum á besta tíma.
Veiðileyfið var boðið upp í gærkvöldi á fjáröflunaruppboði Redd villaksen í Osló. Mikil spenna ríkti á uppboðinu þegar tveir aðilar kepptust um að bjóða í Alta stöngina, með fyrrgreindri niðurstöðu. Jon Anders Walle, sem situr í stjórn samtakanna Reddvillaksen var að vonum ánægður með uppboðið í gær og sagði að samtals hefðu safnast um tvær milljónir norskra króna á uppboðinu. Það er um 25,7 milljónir íslenskra króna.
Jens Olav Flekke stjórnarformaður samtakanna bauð gesti velkomna á viðburðinn í Osló í gær. Ljósmynd/Andreas Fredrik Thoresen
„Við áttum alveg von á að sjá nýtt met í gærkvöldi og fyrir samtökin okkar var þetta frábært. Ég hef ekki heyrt um hærri upphæð fyrir laxveiðileyfi. Þannig að líkast til er hægt að tala um heimsmet,“ sagði Jon Anders í samtali við Sporðaköst og var þar að svara spurningunni hvort þetta væri heimsmet. Hann sagði að þessi fjárhæð hefði þegar vakið athygli fjölmiðla og hvernig stæði á því að menn væru tilbúnir til að borga slíka fjárhæð til að fara að veiða. „Þá vill stundum gleymast af hverju við erum að gera þetta og hvað samtökin standa fyrir,“ bætti Jon Anders við.
Nafnleynd - í bili allavega
Kaupandinn óskaði nafnleyndar, að sögn Jon Anders. Hann sagði þó að þessi aðili hefði ekki áður boðið í veiðileyfi í Alta en svo gæti farið að hann myndi síðar stíga fram og tjá sig. „Auðvitað eru þetta miklir peningar fyrir laxveiðileyfi og hægt væri að komast víða að til að veiða en þetta er fyrst og fremst styrkur til þeirrar baráttu og verkefna sem Reddvillaksen stendur í. Þessir peningar munu nýtast í margvísleg verkefni,“ sagði hann.
Redd villaksen eru norsk samtök sem hafa það að markmiði að tryggja öfluga villta laxastofna í norskum ám fyrir komandi kynslóðir.
Samtökin hafa sterka Íslandstengingu. Orri Vigfússon, sá ötuli baráttumaður fyrir villta laxinn stofnaði NASF fyrir aldamótin og að sögn Jon Anders þá átti Orri frumkvæði að því að stofna það sem síðar varð Redd villaksen. „Upphaflega var markmiðið að kaupa upp laxanet í Þrándheimsfirði. Síðar varð svo Reddvillaksen sjálfstæð stofnun, en við höldum enn á lofti tengslum okkar við NASF og Orra. Hann var upphafsmaður þessa alls og við eigum honum mikið að þakka. Ég sjálfur kynntist Orra og veiddi með honum,“ sagði Jon Anders og minnist hann frumkvöðulsins með hlýhug og þakklæti.
Kvöldið hófst með sýningu myndarinnar The Rollercoaster, sem Emilie Björkman og Ted Logart gerðu. Hér er Emilie að kynna myndina. Ljósmynd/Andreas Fredrik Thoresen
„Fordæmalaus staða“
Oft hefur verið þörf en nú er nauðsyn, þegar maður horfir til stöðunnar í Gaula og Orkla. Eða hvað?
„Við höfum oft talað um erfiðleika og hættumerki. En við gátum aldrei séð fyrir það sem er að gerast núna í ánum sem falla í Þrándheimsfjörð. Þetta er algerlega fordæmalaus staða. Ástandið er miklu verra en nokkur átti von á. Hafandi sagt það þá er það sem betur fer ekki staðan um allan Noreg og þess norðar sem er farið þá er ástandið þar víða ágætt. En þegar kemur að Gaula þá vita menn ekki hvað verður. Það er þó ljóst að þessar ár opna ekki á næsta ári og enginn veit hvað mun taka við. Það er sorgleg staða því Gaula er væntanlega sú á þar sem seld eru flest leyfi á hverju ári í Noregi.“
Jon Anders segir verkefnin fjölmörg og mikla óvissu ríkja. Hann nefnir breytt skilyrði í sjónum, sjókvíaeldi og þá ekki síst vaxandi áhyggjur af laxalús frá þeim. En þegar horft er til sveppasýkingar í Gaula og Orkla og raunar í fleiri ám á Þrándheimsfjarðarsvæðinu þá hafa vísindamenn ekki svör og óvissan er erfið. En ljóst að verkefnin er næg og þeim fjölgar bara.
Gerðu góð kaup á íslenskum leyfum
Uppboðið í gær var það tuttugasta sem samtökin standa fyrir og boðin voru upp 40 veiðileyfi út um allan heim. Vissulega var Alta stöngin hápunktur uppboðsins og metin á 150 þúsund norskar krónur. Þar fór upphæðin sannarlega fram úr væntingum. Boðin voru upp veiðileyfi í Argentínu, á Seyschelleseyjum, í Alaska, á Íslandi, í Skotlandi, í Svíþjóð og víða í Noregi.
Tvö íslensk veiðileyfi voru á uppboðinu. Víðidalsá í ágúst í þrjá daga og Laxárdalurinn fyrir norðan. Víðidalurinn var verðmetinn í uppboðsskránni á um 644 þúsund íslenskar krónur en hæsta boð var 450 þúsund. Ein stöng í þrjá daga með fæði 23. til 26. ágúst.
Sama var uppi á teningnum þegar að tvær stangir í urriðanum í Laxárdal, í þrjá daga voru boðnar upp. Verðmætið var metið 412 þúsund íslenskar krónur en hæsta boð var 257 þúsund krónur. Þarna gerðu einhverjir uppboðsgesta góð kaup að mati Jon Anders.
Redd villaksen var með beina útsendingu frá uppboðinu á heimasíðu sinni.
Seinustu hundraðkallar sumarsins
| Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
|---|---|---|---|
| 108 cm | Stóra Laxá | Jón Kristinsson | 27. september 27.9. |
| 100 cm | Laxá í Dölum | Reynir Sigmundsson | 26. september 26.9. |
| 102 cm | Fossá | Theodór Ingibergsson | 18. september 18.9. |
| 102 cm | Selá í Vopnafirði | Huginn Freyr Þorsteinsson | 4. september 4.9. |
| 103 cm | Laxá í Aðaldal | Auðunn Sigurðsson | 3. september 3.9. |
| 107 cm | Laxá í Aðaldal | Nils Folmer Jorgensen | 29. ágúst 29.8. |
| 102 cm | Hofsá | Bergþór Jónsson | 25. ágúst 25.8. |
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

