Ekki manndráp af gáleysi í Lækjargötumálinu
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag karlmann af ákæru um manndráp af gáleysi, eftir að hafa ekið skotbómulyftara á aðra bifreið á horni Lækjargötu og Vonarstrætis árið 2023, með þeim afleiðingum að ökumaður bifreiðarinnar lést.
Var manninum gefið að sök að hafa ekið lyftaranum undir áhrifum slævandi lyfja með gafflana í um 70 sentimetra hæð þegar slysið varð.
Samkvæmt skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa var meginorsök slyssins akstur ökumanns sendibifreiðarinnar undir áhrifum fíkniefna en aðrar orsakir slyssins voru að ökumaður hennar virti ekki biðskyldu og ók í veg fyrir vinnuvélina.
Við upphaf aðalmeðferðar var hins vegar fallið frá þeim hluta ákærunnar er varðaði akstur undir áhrifum lyfja. Styrkur lyfja í blóði hins ákærða var undir nýjum vanhæfismörkum og hafði maðurinn jafnframt lyfseðil fyrir lyfjunum. Eftir stóð því aðeins ákæra fyrir manndráp af gáleysi, sem maðurinn hefur nú verið sýknaður af.
Karlmaður á fertugsaldri lést í slysinu.
Dómurinn var kveðinn upp í morgun en hefur enn ekki verið birtur. Hjördís Halldórsdóttir, lögmaður mannsins, staðfesti niðurstöðuna í samtali við mbl.is.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗