Sandkorn: Heimtufrekjan er systir heimskunnar
Nú hafa flugmenn samþykkt ótímabundið verkfall á leiguflugsrútum Icelandair. Líklega er það vegna ótta þeirra um að til standi að færa hluta starfsemi félagsins til Möltu.
Ekki þyrfti að koma á óvart að heimtufrekja flugmannanna verði til að flýta flutningi verkefna til Möltu og jafnvel í meira mæli en ráðgert var. Á þessu virðast flugmennirnir ekki átta sig og hafa með þessu enn og aftur bakað sér óvild landsmanna enda finnast fáir sem hafa samúð með þessari hálaunastétt.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗