Hætta við þátttöku á HM vegna hættulegs ástands

Helgi Fannar Sigurðsson

Fimmtudaginn 12. nóvember 2026 13:30

HM A-landsliða karla fór fram í Katar árið 2022. Getty Images

Bandaríkin hafa ákveðið að draga landslið sitt úr heimsmeistaramóti U-17 karla sem hefst í Katar í næstu viku. Ástæðan er áhyggjur af öryggi leikmanna og starfsfólks vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum.

Bandaríska utanríkisráðuneytið hefur varað ríkisborgara sína við ferðalögum til Katar vegna hættu á vopnuðum átökum.

„Velferð leikmanna okkar og starfsfólks verður alltaf í fyrsta sæti,“ segir í bréfi bandaríska knattspyrnusambandsins til leikmanna.

Mótið fer fram dagana 19. nóvember til 13. desember og áttu Bandaríkin að mæta Svartfjallalandi, Síle og Alsír í riðlakeppninni.

FIFA hefur verið tilkynnt um ákvörðunina en segir að öryggismat sambandsins sé óbreytt og að ekkert nýtt hafi komið fram sem breyti stöðunni í Katar.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅