Uppsagnarhrina í ensku úrvalsdeildinni
Franska knattspyrnustjóranum Pierre Sage hefur verið sagt upp störfum hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Crystal Palace.
Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum en Sage, sem er 47 ára gamall, tók við stjórnartaumunum hjá enska félaginu í sumar af Oliver Glasner.
Palace hefur byrjað tímabilið skelfilega í ensku úrvalsdeildinni og hefur aðeins unnið tvo af fyrstu tíu leikjum sínum í deildinni.
Liðið hefur tapað fjórum leikjum í röð í deildinni og er með sjö stig í 20. og neðsta sætinu, tveimur stigum frá öruggu sæti.
Daninn Thomas Frank þykir líklegastur til þess að taka við Crystal Palace en hann stýrði áður Tottenham og Brentford.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗