Fjölnir GK fer að kveðja Austfirðina

Fjölnir GK á stíminu inn Norðfjörð að afloknum róðri.

Fjölnir GK á stíminu inn Norðfjörð að afloknum róðri. Ljósmynd/SVN/Guðlaugur Björn Birgisson

Skipstjórar krókaaflamarksbátsins Fjölnis GK sem hefur verið gerður út frá Neskaupstað síðan í ágústbyrjun eru nú farnir að huga að því að færa sig suður.

Í umfjöllun á vef Síldarvinnslunnar eru þeir Júlíus Magnús Sigurðsson og Kristinn Arnberg Kristinsson sagðir mjög ánægðir með aflabrögðin fyrir austan síðustu vikur. 

Haft er eftir Júlíusi Magnúsi að október hefði í raun verið tvískiptur. Fyrri hluta október hafi verið mokveiði en mikið um brælu og viðhaldsstopp sem einkennt hafi seinni hluta mánaðarins.

„Þrettánda október var aflinn í mánuðinum orðinn meira en 100 tonn og mánuðurinn endaði í 160 tonnum þrátt fyrir að lítið hafi verið róið síðari helming hans,“ segir hann.

Það sem af er nóvember hafi síðan verið ágætasta kropp.

„Veiðin hérna fyrir austan hjá okkur frá því í ágúst nemur um 430 tonnum. Það er langmest af þorski í aflanum eða um 350 tonn og 60 tonn eru ýsa.“

Kristinn Arnberg segir sömuleiðis að afar vel hafi aflast fyrir austan, en nú fari að koma að því að færa sig um set.

„Við vorum mikið að fiska á Hornflákanum fyrst eftir að við komum austur en í haust höfum við mest verið á Héraðsflóanum. Þetta hefur í reyndinni gengið afskaplega vel fyrir austan og segja má að allt árið hafi verið gott hjá okkur,“ segir hann.

内容来自 Mbl.is - 200 mílur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅