Hlynur Ingólfsson er kominn með nýja vinnu
Hlynur Ingólfsson hreyfihönnuður er mættur til starfa hjá auglýsingastofunni Cirkus. Ljósmynd/Baldur Kristjánsson
Auglýsingastofan Cirkus hefur ráðið hreyfihönnuðinn Hlyn Ingólfsson til starfa. Hlynur hefur víðtæka reynslu af hönnun og markaðsmálum en hann starfaði áður meðal annars hjá Bláa lóninu, LazyTown og auglýsingastofunni Maurum.
Hlynur er 42 ára Akureyringur og er með BA-gráðu í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands. Auk starfa sinna á sviði hönnunar hefur hann verið virkur í íslensku tónlistarlífi um árabil sem meðlimur hljómsveitarinnar Skyttanna.
Rósa María Árnadóttir, framkvæmdastjóri Cirkus, segir ráðninguna mikinn styrk fyrir auglýsingastofuna.
„Hlynur er mikill happafengur fyrir Cirkus og styrkir okkur enn frekar, þar sem hreyfihönnun er auðvitað ótrúlega mikilvægur hluti af okkar starfsemi. Svo er hann líka bara svo skemmtilegur. Frábær viðbót við hópinn!“ segir Rósa María.
Hlynur segist spenntur fyrir nýjum áskorunum eftir að hafa starfað lengi fyrir sama vörumerkið.
„Eftir að hafa unnið lengi fyrir eitt og sama vörumerkið er spennandi að víkka sjóndeildarhringinn á ný. Hjá Cirkus eru alls konar viðskiptavinir og mörg ólík vörumerki, sem ég hlakka til að sinna með þessu frábæra teymi,“ segir Hlynur.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗