Hljóðupptaka réð úrslitum í launadeilu

Maðurinn var ráðinn til bílaviðgerða hjá verkstæðinu í apríl 2023. Hann sagði sjálfur upp störfum 20. mars 2025 og átti samkvæmt uppsagnarbréfi að láta af störfum 30. apríl sama ár. Ljósmynd/Colourbox

Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt bifreiðaverkstæði til að greiða fyrrverandi starfsmanni tæplega 700 þúsund krónur vegna vangreiddra launa í uppsagnarfresti.

Verkstæðið þarf jafnframt að greiða manninum 1,24 milljónir króna í málskostnað.

Ágreiningurinn snerist um hvort manninum hefði verið gert að hætta störfum áður en uppsagnarfrestur hans rann út eða hann sjálfur ákveðið að mæta ekki aftur til vinnu. Hljóðupptökur af samskiptum hans og fyrirsvarsmanns verkstæðisins höfðu úrslitaþýðingu við mat dómsins.

Dómurinn var kveðinn upp í dag.

Hafði sjálfur sagt upp störfum

Maðurinn var ráðinn til bílaviðgerða hjá verkstæðinu í apríl 2023. Hann sagði sjálfur upp störfum 20. mars 2025 og átti samkvæmt uppsagnarbréfi að láta af störfum 30. apríl sama ár.

Samskipti á vinnustaðnum höfðu verið stirð, að minnsta kosti undir lok ráðningartímans. Þann 1. apríl kom til orðaskipta milli mannsins og fyrirsvarsmanns verkstæðisins. Starfsmaðurinn mætti ekki aftur til vinnu eftir það.

Hann taldi sér hafa verið sagt að vinnuframlags hans væri ekki lengur óskað. Verkstæðið hélt því hins vegar fram að honum hefði aðeins verið vísað af vinnustaðnum þennan dag vegna framkomu hans. Hann hefði sjálfur ákveðið að mæta ekki aftur og því fyrirgert rétti sínum til frekari launa.

Gert að skila lykli og taka eigur sínar

Við úrlausn málsins leit dómurinn einkum til hljóðupptöku af samskiptunum 1. apríl. Þar bað fyrirsvarsmaður verkstæðisins manninn ítrekað um að taka eigur sínar og fara. Jafnframt var honum gert að skila lykli að vinnustaðnum.

„Ég vil að þú skiljir eftir lykilinn þinn, takir dót þitt og farir,“ sagði fyrirsvarsmaðurinn meðal annars, samkvæmt íslenskri þýðingu samtalsins sem rakin er í dóminum.

Dómurinn taldi ekki unnt að túlka samskiptin með öðrum hætti en að starfsmaðurinn ætti að yfirgefa vinnustaðinn fyrir fullt og allt. Hann hefði því mátt ganga út frá því að hann þyrfti ekki að vinna það sem eftir var uppsagnarfrestsins.

Hefði fyrirsvarsmaður verkstæðisins átt annað við hefði staðið honum nær að leiðrétta þann misskilning þegar ljóst varð að starfsmaðurinn mætti ekki aftur til vinnu.

Engar áminningar í gögnum málsins

Verkstæðið byggði einnig á því að maðurinn hefði brotið gegn starfsskyldum sínum og trúnaði með slælegum vinnubrögðum og slæmri hegðun. Starfsmaðurinn mótmælti þeim fullyrðingum sem ósönnuðum.

Dómurinn benti á að ekkert yrði ráðið af gögnum málsins um gæði vinnu mannsins. Þar væru hvorki athugasemdir né áminningar vegna vinnubragða hans.

Hvað hegðun hans varðaði væru aðeins hljóðupptökurnar til stuðnings. Þær hefðu verið gerðar eftir að maðurinn sagði upp störfum og því yrði ekki alhæft út frá þeim um fyrri samskipti á vinnustaðnum.

Þá taldi dómurinn ekki verða ráðið af samskiptunum að starfsmaðurinn hefði stýrt þeim í þeim tilgangi að verða rekinn, líkt og verkstæðið hélt fram.

Verkstæðinu var gert að greiða manninum 699.777 krónur vegna launa og orlofs fyrir apríl 2025, ásamt dráttarvöxtum frá 1. maí það ár. Með málskostnaði nemur greiðsluskyldan tæplega 1,94 milljónum króna, auk dráttarvaxta.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅