Hljóðupptaka af heiftarlegu rifrildi á bifreiðaverkstæði réði úrslitum fyrir dómi

Ritstjórn DV

Ritstjórn DV

Fimmtudaginn 12. nóvember 2026 13:15

Myndin tengist fréttinni ekki með beinum hætti.

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur gert bifreiðaverkstæði í Garðabæ að greiða fyrrverandi starfsmanni tæplega 700 þúsund krónur vegna vangreiddra launa á uppsagnarfresti.

Starfsmaðurinn sagði sjálfur starfi sínu lausu í mars 2025, en hann hafði starfað hjá verkstæðinu sem bifvélavirki í rétt tæp tvö ár. Var starfsmanninum gert að vinna út aprílmánuð. Samskipti á vinnustaðnum voru stirð og þann 1. apríl kom til orðaskipta sem urðu til þess að starfsmaðurinn yfirgaf vinnustaðinn og sneri ekki til baka aftur.

Ágreiningur í málinu laut að því hvort starfsmaðurinn hefði verið rekinn út fyrir fullt og allt í kjölfar orðaskiptanna eða hvort hann hefði aðeins verið sendur heim þann daginn. Taldi starfsmaðurinn að með því að reka hann út hefði vinnuframlag hans á uppsagnarfresti verið afþakkað. Hann ætti engu að síður rétt til þess að fá greitt. Verkstæðið taldi að starfsmaðurinn hefði sjálfur ákveðið að mæta ekki aftur og því fyrirgert rétti sínum til frekari launa.

Þá komu til sögunnar hljóðupptökur. Starfsmaðurinn hafði tekið upp samskipti sín við fyrir fyrirsvarsmann fyrirtækisins án vitneskju þess síðarnefnda. Ein upptakan var frá 1. apríl, deginum sem starfsmaðurinn var rekinn heim eftir heiftarlegt rifrildi hans við fyrirsvarsmanninn. Þar má meðal annars heyra fyrirsvarsmanninn segja: „Ef þú ert að búa til vandamál hérna núna vil ég að þú farir“ og líka: „Ég vil að þú skiljir eftir lykilinn þinn, takir dót þitt og farir.“ Ítrekar fyrirsvarsmaðurinn nokkrum sinnum að starfsmaðurinn eigi að taka saman eigur sínar, skila lyklum og yfirgefa verkstæðið. Eins má ráða af upptökunni að deilurnar hafi varðað meinta skuld verkstæðisins við starfsmanninn. Fyrirsvarsmaðurinn spyr starfsmanninn hvort hann hafi verið geðveikur með því að hafa hótað að drepa hann. Starfsmaðurinn sagði: „Af því að þú ert mjög reiður. Ég er hræddur um að þú drepir mig,“ ítrekaði fyrirsvarsmaðurinn þá enn aftur: „Ég tel best að þú takir dótið þitt núna og farir,“ og bað starfsmanninn svo að yfirgefa verkstæðið „núna“.

Dómurinn taldi ófært að túlka þessi samskipti með öðrum hætti en að starfsmanninum hafi þarna verið gert skylt að yfirgefa vinnustaðinn fyrir fullt og allt. Hefði ætlun fyrirsvarsmannsins verið önnur hefði honum verið í lófa lagið að leiðrétta þann misskilning þegar starfsmaðurinn kom ekki aftur til vinnu. Ásakanir fyrirsvarsmanns um meint slægleg vinnubrögð og slæma framkomu væru ekki studdar gögnum, en engar áminningar væru fyrir hendi eða sannanir um að athugasemdir hafi verið gerðar við vinnubrögð starfsmannsins. Þau rifrildi sem heyra mætti á upptökum hefðu átt sér stað eftir að starfsmaðurinn sagði upp störfum og samskiptin þá líklegast litast af þeirri forsendu að vinnuréttarsambandi aðila væri við það að ljúka.

Fær starfsmaðurinn því launin sem hann átti að fá fyrir apríl og einnig þarf verkstæðið að greiða 1,24 milljónir í málskostnað. Dómurinn varkveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness í dag. 

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅