Sakar United um mikla vanvirðingu
Peter Schmeichel gagnrýndi framkomu Manchester United í garð Michaels Carricks eftir að knattspyrnustjórinn hélt áfram að stýra æfingum þrátt fyrir fregnir af því að félagið væri að undirbúa ráðningu eftirmanns hans.
„Mér finnst það hvernig þetta mál þróast sýna honum mikla vanvirðingu,“ sagði fyrrverandi markvörður United í samtali við The Overlap Daily.
Schmeichel kenndi langvarandi mistökum þeirra sem standa ofar Carrick í goggunarröðinni um vandræði United og benti á að félaginu hefði mistekist að fá til sín varnarmann í sumar.
Hann bætti svo við að United ætti að halda tryggð við Carrick, sem var síðan rekinn fyrr í dag.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗