Banaslysið í Lækjargötu: Ökumaður skotbómulyftarans sýknaður
Maður sem ók skotbómulyftara á sendibíl á horni Lækjargötu og Vonastrætis árið 2023 hefur verið sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur af ákæru um manndráp af gáleysi. RÚV greinir frá þessu en dómurinn hefur ekki verið birtur.
Ákærði ók skotbómulyftara af tegundinni Manitou MT 625H, undir áhrifum slævandi lyfja, en í blóði hans mældist díazepam 83 ng/ml og nordíazepam 160 ng/ml. Hann var í ákæru sagður hafa ekið um Lækjargötu við Vonarstræti með gaffla lyftarans í 70 cm hæð, án nægilegrar athygli, en útsýni til hægri hafi verið að miklu leyti byrgt vegna staðsetningar skotbómumunnar. Lyftarinn lenti í árekstri við Volkswagen Caddy-sendibifreið sem ekið var af stað á gatnamótum til vinstri frá Vonarstræti inn á Lækjargötu. Gafflar lyftarans stungust inn í sendibílinn með þeim afleiðingum að ökumaður hans lést samstundis af áverkum sem hann hlaut við áreksturinn.
Í skýrslu Rannsóknarnefndar samgönguslysa um slysið, sem greint frá var í byrjun árs 2025, segir að ökumaður sendibílsins hafi verið óhæfur til aksturs vegna áhrifa örvandi fíkniefnis. Aðrar orsakir slyssins, samkvæmt niðurstöðu nefndarinnar, eru þær að ökumaður sendibifreiðarinnar virti ekki biðskyldu og ók í veg fyrir vinnuvélina, en biðskylda er fyrir umferð af Vonarstræti inn á Lækjargötu. Aðrar orsakir slyssins, samkvæmt niðurstöðu nefndarinnar, eru þær að ökumaður sendibifreiðarinnar virti ekki biðskyldu og ók í veg fyrir vinnuvélina, en biðskylda er fyrir umferð af Vonarstræti inn á Lækjargötu.
Sem fyrr segir hefur dómurinn ekki verið birtur og því ekki vitað um forsendur niðurstöðunnar.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗