Magnús ómyrkur í máli vegna „maður á mann“ kynningar - „Skammist ykkar Kaldvík“
Kristinn H. Guðnason
Fimmtudaginn 12. nóvember 2026 13:00
Magnús vill stöðva áform Kaldvíkur um uppbyggingu laxeldis í Seyðisfirði. Mynd/Wikipedia
Magnús Guðmundsson, stjórnarmaður í VÁ, félagi um vernd fjarðar, er ósáttur við að laxeldisfyrirtækið Kaldvík komi til Seyðisfjarðar með „einhliða maður á mann kynningu“ á starfsemi fyrirtækisins. Einnig að fyrirtækið hafi reynt að hindra aðild landeigenda í firðinum að byggingarleyfisumsókn.
Mikill styr hefur staðið um áform Kaldvíkur um uppbyggingar laxeldis í Seyðisfirði. En skoðanakönnun um málið sýndi að mikill meirihluti íbúa, um 75 prósent, væri á móti þeim. Þá hafa náttúruverndarsamtök og landeigendur á svæðinu reynt að stöðva áformin.
Maður á mann
Í grein í miðlinum Austurfrétt er Magnús Guðmundsson, stjórnarmaður í einum slíkum samtökum, það er VÁ, harðorður í garð Kaldvíkur fyrir þær aðferðir sem fyrirtækið beiti í sinni baráttu.
„Skammist ykkar Kaldvík,“ segir Magnús í greininni. „Kaldvík leyfir sér að koma til Seyðisfjarðar með einhliða maður á mann kynningu á starfsemi fyrirtækisins, þrátt fyrir að hafa sýnt meirihluta íbúa og ekki síst landeigendum þá miklu vanvirðingu að hafa í tvígang á árinu reynt að hindra aðild þeirra að byggingarleyfisumsókn fyrirtækisins.“
Tjaldi ekki á lóðum annarra
Það er að Kaldvík hafi gert kröfu um aðild landeigenda að byggingarleyfisumsókn þó að gögn sýni að notkunin fari inn í netlög landeigenda.
„Eftir að landeigendum var úrskurðuð aðild að málinu í annað sinn höfum við séð hluta af samskiptum Kaldvíkur við HMS og aðrar stofnanir. Í gögnunum sést að Kaldvík hefur stanslaust rekið á eftir HMS við vinnu byggingarleyfisumsóknanna án þess að fullnægjandi gögn frá fyrirtækinu liggi fyrir. Það tekur á að lesa um yfirgang fyrirtækisins við að ná byggingarleyfinu í Seyðisfirði í gegn,“ segir Magnús.
Sjá einnig:
Katrín fagnar úrskurði í laxeldismálinu á Seyðisfirði – „Þetta eru STÓRKOSTLEGAR fréttir“
Segir hann að Kaldvík skorti landrými og hafi ekkert heimilisfang á Seyðisfirði.
„Hvar ætlar Kaldvík að tjalda? Maður tjaldar ekki á lóðum annarra í leyfisleysi,“ segir hann. „Kaldvík hefur ekkert heimilisfang í Seyðisfirði. Íbúar vilja byggja fjörðinn sinn upp á umhverfisvænni hátt en sjókvíaeldi Kaldvíkur býður uppá.“
Skilaboð íbúa
Vísar hann til skilaboða frá meirihluta íbúa um að þeir séu á móti laxeldisáformunum. Spyr hann hvað þurfi til að Kaldvík hlusti og virði vilja samfélagsins sem það hyggist hefja starfsemi í.
„Hver er tilgangurinn með opnu húsi núna, eftir að fyrirtækið hefur árum saman unnið að því að koma starfseminni á, þrátt fyrir þessa skýru andstöðu heimamanna?“ segir hann. „Í stað þess að fara að lögum kemur Kaldvík mörgum árum síðar og býður almenningi upp á óformlegt maður á mann spjall – kynningu á fyrirtækinu. Dregin hefur verið skýr lína í sjóinn til að hafna mengandi matvælaframleiðslu í firðinum. Stopp – látið fjörðinn í friði!“
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗