Vilja kaupa leikmann frá Arsenal og United

Atletico Madrid hefur áhuga á að fá Martin Zubimendi frá Arsenal og Lisandro Martinez frá Manchester United. Talksport segir frá þessu.

Zubimendi hefur misst sæti sitt í byrjunarliði Arsenal, til að mynda vegna komu Bruno Guimaraes í sumar. Diego Simeone, stjóri Atletico, vill að félagið reyni að fá Spánverjann.

Arsenal vill þó helst halda Zubimendi út tímabilið en hann hefur einnig verið orðaður við Chelsea.

Martinez hefur verið sterklega orðaður frá United, ekki síst vegna slakrar frammistöðu á leiktíðinni og þá gagnrýndi hann stjórnendur félagsins opinberlega á dögunum. 

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅