Mr. Iceland og hestarnir hans

Hörður Bender, sem rekur ferðaþjónustu undir nafninu Mr. Iceland á Úlfsstöðum í Landeyjum, segir marga gesti koma gagngert til Íslands til að fara í hestaferðir hjá honum. Sumir dvelji á bænum í fjóra til fimm daga og fari í nokkrar ferðir meðan á dvölinni stendur.

Hörður er gestur Óskars Bergssonar í Dagmálum, þar sem hann segir frá starfseminni og alþjóðlegri athygli sem hún hefur vakið.

Spurður hvort fólk komi sérstaklega til landsins til að hitta Mr. Iceland slær hann á létta strengi.

„Alla vega til að hitta hestana mína.“

Fjórða besta upplifunin

Hörður segir blaðamann, sem ferðaðist til 52 landa á einu ári og dvaldi viku í hverju þeirra, hafa komið í hestaferð hjá sér. Í umfjöllun hans í tímaritinu Reject Average hafi ferðinni verið raðað í fjórða sæti yfir bestu upplifanirnar.

„Og hann var bara hluti af túr sko, hann var bara, hann var þarna með.“

Heimsóknin hafi ekki orðið sú síðasta.

„Hann er búinn að koma aftur sko með fjölskyldu sína eftir þetta.“

Vildi persónulegt nafn

Vörumerkið Mr. Iceland á sér forsögu í fyrri störfum Harðar. Eftir fimm ár hjá Icelandair stofnaði hann netferðaskrifstofuna MisterJet.com í Stokkhólmi.

Þegar ferðaþjónustan á Úlfsstöðum fór að taka á sig mynd leitaði hann að nafni sem tengdi saman landið og persónulega nálgun hans. Hann vildi hafa Iceland í nafninu og Mister-nafnið hafði áður reynst honum vel.

Nú segir Hörður ferðirnar oft vera megintilgang Íslandsferðar gestanna, þótt þeir nýti tækifærið til að skoða fleiri staði.

„Að þetta sé aðalpunkturinn hjá mínum gestum, það er bara oftar en ekki sko.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅