Erum rosalega góðir saman
Daníel Tristan Guðjohnsen hefur raðað inn mörkum fyrir U21 árs landslið Íslands í undanförnum leikjum. Á sama tíma fær hann mjög sjaldan að byrja leiki með félagsliði sínu Malmö í Svíþjóð.
„Það er alveg svolítið skrítið en það skiptir náttúrulega mjög miklu máli fyrir mig að koma hingað og gera góða hluti hér,“ sagði Daníel við mbl.is.
Íslenska liðið hefur verið á miklu flugi og vann t.a.m. 5:1-heimasigur á Sviss og gerði jafntefli við sterkt lið Frakklands, 1:1.
„Ég held að við í liðinu séum bara rosalega góðir saman. Okkur líður öllum ótrúlega vel í sóknarleiknum og varnarleiknum. Það er því ekki bara mér sem hefur gengið vel, heldur öllu liðinu í rauninni. Svo var ég bara heppinn að setja mörkin,“ sagði Daníel.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗