Vilja heyra af hindrunum í utanríkisviðskiptum

Utanríkisráðherra skipaði spretthópinn 9. október. Honum er ætlað að greina stöðu og þróun alþjóðaviðskiptakerfisins með hliðsjón af hagsmunum Íslands. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Spretthópur sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra skipaði til að greina tækifæri og áskoranir í alþjóðaviðskiptum óskar eftir sjónarmiðum fyrirtækja og annarra hagsmunaaðila.

Sérstaklega er leitað eftir ábendingum um sóknarfæri á erlendum mörkuðum, viðskiptahindranir og hvernig stjórnvöld geti betur stutt við hagsmuni íslensks atvinnulífs.

Þetta kemur fram í tilkynningu utanríkisráðuneytisins. Umsagnarbeiðni hópsins hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda og er frestur til að skila umsögnum til og með 3. desember.

Kortleggja ný viðskiptatækifæri

Utanríkisráðherra skipaði spretthópinn 9. október. Honum er ætlað að greina stöðu og þróun alþjóðaviðskiptakerfisins með hliðsjón af hagsmunum Íslands.

Hlutverk hópsins er meðal annars að greina helstu tækifæri og áskoranir í alþjóðaviðskiptum, kortleggja ný viðskiptatækifæri og móta tillögur að sameiginlegum markmiðum stjórnvalda og atvinnulífs. Jafnframt á hann að leggja til aðgerðir sem unnt væri að ráðast í til skemmri og meðallangs tíma.

Vinnan tekur til mikilvægustu viðskiptamarkaða Íslands, bæði nær og fjær, þar á meðal innri markaðar EES, Bandaríkjanna, Bretlands, Kanada og Asíu.

Útflutningsfyrirtæki sérstaklega hvött til þátttöku

Með umsagnarbeiðninni vill hópurinn öðlast betri innsýn í reynslu, þarfir og áherslur íslenskra fyrirtækja í alþjóðaviðskiptum.

Óskað er eftir sjónarmiðum um helstu sóknarfæri á erlendum mörkuðum og áskoranir og hindranir í núverandi viðskiptaumhverfi, bæði innanlands og erlendis. Þá er leitað eftir ábendingum um hvernig stjórnvöld geti betur stutt við hagsmuni íslensks atvinnulífs á alþjóðavettvangi.

Almenningi, fyrirtækjum og öðrum hagsmunaaðilum er boðið að senda umsagnir og ábendingar. Fyrirtæki í útflutningi og aðrir hagsmunaaðilar eru sérstaklega hvattir til þátttöku.

Nánar hér.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅