Lisa átt í langvarandi deilum við frægan mann - „Hún er með ansi stóran kjaft“

Roy Keane, fyrrverandi fyrirliði Manchester United, hefur um árabil átt í opinberum deilum við Lisu Carrick, eiginkonu Michael Carrick sem var rekinn frá félaginu í dag. Breska blaðið Daily Star rifjar þetta upp í ljósi frétta dagsins.

Deilurnar hófust árið 2014 þegar Keane gagnrýndi frammistöðu Carrick eftir 2-0 tap United gegn Olympiacos í Meistaradeildinni. Keane sagði Carrick hafa verið jafn áhugalausan í viðtali eftir leikinn og inni á vellinum.

Roy Keane /GettyImages

Lisa brást illa við og skrifaði á Twitter að Keane væri „algjör hálfviti sem segði hvað sem er til að fá viðbrögð“. Hún eyddi færslunni skömmu síðar og viðurkenndi að tilfinningarnar hefðu borið hana ofurliði.

Keane hafði greinilega ekki gleymt þessu þegar Carrick tók við United í janúar síðastliðnum.

„Konan hans getur alltaf komið inn, hún er stundum með ansi stóran kjaft. Hún sér líklega um liðsræðuna,“ sagði Keane þá.

Carrick var spurður út í ummælin á blaðamannafundi en lét þau ekki á sig fá.

„Þetta truflaði mig ekki. Það eru margar skoðanir þarna úti en þær skipta engu máli,“ sagði Carrick.

Carrick var sem fyrr segir rekinn í dag eftir aðeins einn sigur í fyrstu tíu leikjum ensku úrvalsdeildarinnar á leiktíðinni.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅