Stuðningsmenn Íslands fá frítt á völlinn

Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir.

Landsliðsfyrirliðinn Glódís Perla Viggósdóttir. Ljósmynd/Alex Nicodim

Knattspyrnusamband Íslands og bakhjarlar sambandsins ætla að bjóða öllum stuðningsmönnum frítt á völlinn þegar íslenska kvennalandsliðið mætir Portúgal í síðari leik liðanna í umspili um sæti í lokakeppni HM 2027 þann 5. desember.

Þetta tilkynnti Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska liðsins, á blaðamannafundi í höfuðstöðvum KSÍ á Laugardalsvelli í dag en markmiðið er að fylla völlinn.

Fyrri leikur liðanna fer fram í Portúgal þann 1. desember en Ísland lagði Króatíu í undanúrslitum umspilsins á meðan Portúgal hafði betur gegn Norður-Írlandi.

Landsliðsþjálfarinn valdi 23 leikmenn fyrir verkefnið í dag en Ísland hefur farið á fimm Evrópumót í röð en aldrei tekist að tryggja sér sæti í lokakeppni heimsmeistaramótsins.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅