Landsbankinn telur styttast í vaxtalækkun
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum við síðustu ákvörðun eftir þrjár hækkanir í röð. mbl.is/Eyþór
Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum við næstu vaxtaákvörðun, sem verður kynnt 18. nóvember. Deildin telur þó að farið sé að styttast í vaxtalækkun.
Þetta kemur fram í Hagsjá Landsbankans. Þar segir að verðbólga sé enn mikil og mælist jafn mikil og við síðustu vaxtaákvörðun. Það sé þó fyrst og fremst vegna utanaðkomandi verðhækkana sem hún hafi ekki hjaðnað.
Peningastefnunefnd hélt vöxtum óbreyttum við síðustu ákvörðun eftir þrjár hækkanir í röð. Að mati hagfræðideildarinnar gaf tónninn í yfirlýsingu nefndarinnar og á kynningarfundinum þá skýrt til kynna að vaxtahækkunarferlinu væri lokið. Jafnframt hafi verið lögð áhersla á að bíða þyrfti eftir skýrum merkjum um hjöðnun verðbólgu áður en vextir yrðu lækkaðir.
Eldsneytisverð vegur þyngst til hækkunar
Ársverðbólga mældist 5,9% í október, óbreytt frá september. Septembermælingin var sú nýjasta sem lá fyrir við vaxtaákvörðunina í október.
Samkvæmt Hagsjánni minnkaði framlag nokkurra liða til ársverðbólgu milli mælinga, meðal annars innfluttra vara, húsnæðis og flugfargjalda til útlanda.
Framlag eldsneytisverðs jókst hins vegar um 0,28 prósentustig og vó sú breyting langþyngst til hækkunar. Án bensínverðshækkunarinnar milli mánaða hefði ársverðbólga lækkað í 5,6% í október, að mati hagfræðideildarinnar.
Deildin bendir á að bensínverðshækkanirnar megi rekja til hækkana erlendis og séu því ekki til marks um aukna eftirspurn. Hún sjái jafnframt merki um að undirliggjandi verðbólga sé á niðurleið samhliða kólnandi hagkerfi.
Spá 6% verðbólgu þrátt fyrir lækkun verðlags
Hagfræðideildin spáir því að ársverðbólga aukist lítillega í nóvember, úr 5,9% í 6%. Þótt gert sé ráð fyrir að verðlag lækki milli mánaða verði lækkunin örlítið minni en í nóvember í fyrra. Því aukist ársverðbólgan.
Þar hafi meðal annars áhrif hækkanir á eldsneytisverði og verðhækkun nýrra bíla vegna skerðingar styrkja til rafbílakaupa. Deildin segir þróunina óheppilega en hún sé ekki til marks um aukinn eftirspurnarþrýsting.
Vænta vaxtalækkunar á fyrsta ársfjórðungi
Í Hagsjánni er einnig fjallað um könnun sem Seðlabankinn gerði í síðustu viku meðal markaðsaðila á skuldabréfamarkaði. Niðurstöðurnar verða meðal þess sem peningastefnunefnd hefur til hliðsjónar við næstu vaxtaákvörðun.
Meirihluti markaðsaðila gerir ráð fyrir óbreyttum vöxtum út árið en lækkun á fyrsta ársfjórðungi næsta árs. Markaðsaðilar vænta ekki vaxtalækkunar í næstu viku, þótt tveir þriðju þeirra telji aðhald peningastefnunnar of þétt eða alltof þétt.
Verðbólguhorfur samkvæmt könnuninni hafa versnað lítillega frá síðustu könnun, einkum til skemmri tíma. Verðbólguferillinn hefur hliðrast upp en er kominn á svipaðan stað og í fyrri könnun þegar líður á þriðja ársfjórðung næsta árs. Væntingar um meðalverðbólgu næstu fimm ára lækkuðu aftur á móti lítillega.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗