Fluttur á slysadeild eftir að hafa hafnað á vegriði
Innlent | mbl | 12.11.2026 | 11:47
Ökumaður bíls sem hafnaði á vegriði á Hafnarfjarðarvegi, rétt fyrir ofan Nýbýlaveg, í morgun var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild.
Að sögn Guðjóns Ingasonar, varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, slapp ökumaðurinn vel miðað við útlitið á bílnum. Hann hafi þó ekki upplýsingar um hvernig áverka hann hlaut.
Ökumaðurinn var einn í bílnum.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

