Óskar áfrýjunarleyfis í nauðgunarmáli

Málið varðaði atvik á heimili mannsins í Reykjavík í apríl 2023. Hann var ákærður fyrir að hafa með ofbeldi og ólögmætri nauðung haft önnur kynferðismök en samræði við konu án samþykkis hennar. Ljósmynd/Colourbox

Ríkissaksóknari hefur óskað eftir leyfi til að áfrýja til Hæstaréttar dómi Landsréttar í nauðgunarmáli þar sem maður var sýknaður í síðasta mánuði eftir að hafa verið dæmdur í fimm ára fangelsi í héraði.

Þetta kemur fram í svari ríkissaksóknara við fyrirspurn mbl.is vegna málsins.

Tveir dómarar sýknuðu en einn vildi sakfella

Héraðsdómur Reykjavíkur hafði dæmt manninn í fimm ára fangelsi og til greiðslu 2,5 milljóna króna í miskabætur. Meirihluti Landsréttar, tveir dómarar af þremur, sneri niðurstöðunni við og vísaði miskabótakröfunni frá héraðsdómi.

Málið varðaði atvik á heimili mannsins í Reykjavík í apríl 2023. Hann var ákærður fyrir að hafa með ofbeldi og ólögmætri nauðung haft önnur kynferðismök en samræði við konu án samþykkis hennar. Maðurinn bar því við að þau hefðu sammælst um BDSM-kynlíf og að harkan hefði verið með samþykki hennar.

Meirihluti Landsréttar taldi ekki nægilega sannað að maðurinn hefði af ásetningi gengið lengra en samþykki konunnar náði til. Ákæruvaldið yrði að bera hallann af sönnunarskortinum.

Ingibjörg Þorsteinsdóttir landsréttardómari skilaði sératkvæði. Hún taldi hafið yfir vafa að maðurinn hefði beitt konuna mun meira ofbeldi en samþykki hennar hefði náð til og vildi staðfesta bæði fangelsisrefsinguna og miskabæturnar.

Gagnrýndu niðurstöðu Landsréttar

Niðurstaðan vakti hörð viðbrögð. Í viðtali við mbl.is 20. október sagði Drífa Snædal, talskona Stígamóta, tilefni til að kanna sérstaklega meðferð kynferðisafbrotamála hjá Landsrétti.

Hún sagði reynslu Stígamóta þá að menn notuðu BDSM sem afsökun til að komast undan ábyrgð og að dómstólar féllust í einhverjum tilvikum á slíkar skýringar. Drífa lýsti jafnframt áhyggjum af því að niðurstöður á borð við þessa drægju úr vilja brotaþola til að kæra kynferðisbrot.

Stjórn BDSM á Íslandi fordæmdi einnig niðurstöðu meirihluta Landsréttar og sagði forkastanlegt að BDSM væri notað til að réttlæta alvarlegt ofbeldi og líkamstjón. Samtökin lögðu áherslu á að samþykki næði aðeins til þeirra athafna og marka sem þátttakendur hefðu samþykkt og að það mætti ávallt draga til baka.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅