„Allir ættu að vera hræddir“

Lina Attalah, ritstjóri Mada Masr, í viðtali í Kaíró á sunnudaginn. Þessi kona hefur hlotið dóm fyrir að reka vefsíðu óvilhalla egypskum yfirvöldum. AFP/Khaled Desouki

Sakamáladómstóll í Kaíró í Egyptalandi hefur frestað endurupptöku í máli hins kunna þarlenska blaðamanns Linu Attalah, en mál hennar hefur vakið athygli – og um leið úlfaþyt – á alþjóðavettvangi.

Fyrsta þinghaldi málsins, sem ráðgert var í gær, var frestað til 18. nóvember eftir að verjendur Attalah, aðalritstjóra fréttamiðilsins Mada Masr, fóru fram á að skipaður yrði nýr dómari.

Sameinuðu þjóðirnar hafa varað við árásum egypskra stjórnvalda á blaðamenn og fjölmiðlafrelsi auk þess sem þær segja ofsóknir gegn óháðum blaðamönnum ágerast í landinu og lét Attalah þau orð nýlega falla í viðtali við breska ríkisútvarpið BBC að ógnandi aðgerðum stjórnvalda væri ætlað að vera þeim „örfáu fréttastofum sem eftir eru“ til viðvörunar.

„Allir ættu að fara varlega, allir ættu að vera hræddir, allir ættu að velta því fyrir sér hvort þeir séu næstir,“ sagði ritstjórinn sem sakfelldur var í október fyrir dómstól vægari sakamála í Nýju-Kaíró fyrir að reka vefsíðu án leyfis, en leyfið hafði Attalah reynt að útvega sér um árabil án þess að hafa erindi sem erfiði.

Sjö milljónir fyrir að reka vefsíðu

Var hún dæmd til greiðslu þriggja milljóna egypskra punda, upphæðar sem jafngildir tæpum sjö milljónum íslenskra króna, og gert að loka Mada Masr, þrettán ára gömlum miðli sem á stuttu æviskeiði hefur orðið leiðandi afl óháðra egypskra fréttamiðla og lítt mannúðarþenkjandi stjórnvöldum landsins þar með óþægur ljár í þúfu.

Nafn miðilsins mætti þýða sem Svið Egyptalands, mada getur táknað sjóndeildarhring, en í eldra málformi arabísku vísaði þetta orð einnig til grópar fingurhrings sem steinn er felldur ofan í. Hafa Attalah og fleiri aðstandendur Mada Masr vísað til þessa hugtaks sem táknsins um að miðillinn myndi stöðugan grunn óháðrar blaðamennsku. Masr er svo egypsk-arabíski framburðurinn á nafni Egyptalands sem í staðlaðri arabísku er borið fram „misr“.

Eftir að Attalah var dæmd fyrir að reka vefsíðuna í óleyfi kom það upp – og hún heyrði það í fyrsta sinn – að annar dómstóll hafði áður dæmt hana in absentia, að henni fjarstaddri, fyrir að dreifa svokölluðum falsfréttum. Þessi dómur var kveðinn upp árið 2024 og án þess að hún væri viðstödd þrátt fyrir að hún væri þá í landinu.

Attalah lætur engan bilbug á sér finna í ríki á 169. af 180 sætum á lista Blaðamanna án landamæra yfir fjölmiðlafrelsi. AFP/Khaled Desouki

Af hörku gegn fjölmiðlafrelsi

Það er endurupptaka þessa máls sem nú stendur fyrir dyrum og fór verjendateymi hennar fram á það við þingfestingu málsins að dómarinn viki sæti þar sem sami dómari dæmdi í málinu þegar hún var sakfelld og hefði hann því þegar myndað sér skoðun um sekt ákærðu.

Frestaði dómarinn málinu vegna kröfu verjendanna til að gefa dóminum svigrúm til að meta hana.

Egypsk stjórnvöld hafa gengið hart fram gegn fjölmiðlafrelsi og situr landið nú í 169. sæti af 180 ríkjum á lista Blaðamanna án landamæra, Reporters sans frontières, RSF, yfir fjölmiðlafrelsi ríkja árið 2026. Samtökin segja minnst 26 blaðamenn, sem handteknir hafa verið á undanförnum árum, enn í haldi.

Flest egypsk dagblöð og sjónvarpsstöðvar fylgja nú línu stjórnvalda og hefur Mada Masr verið sjaldgæfur, óháður og rannsóknamiðaður fréttamiðill þar í landi. Frá árinu 2017 hefur hins vegar aðeins verið hægt að skoða vefsíðu miðilsins utan landsteinanna.

„Fólk þarf að vita“

Mada Masr hefur fjallað um meinta spillingu og mannréttindabrot auk þess að bjóða upp á ítarlega umfjöllun um stjórnmál og efnahagsmál sem og umbrot og stríðsástand í Líbýu, Súdan og á Gasa.

Í viðtali við BBC á sunnudaginn lagði Attalah þunga áherslu á að staðreyndamiðaður fréttaflutningur og fagleg vinnubrögð Mada Masr gegndu mikilvægu hlutverki í egypsku samfélagi sem gæti í raun komið stjórnvöldum sjálfum til góða.

„Það er mun betra, ef eitthvert smárými er eftir, að hafa það opið fyrir faglega fjölmiðla sem stunda vandaðan fréttaflutning því ef við hverfum skapast rými fyrir samsæriskenningar og falsupplýsingar,“ sagði ritstjórinn við breska ríkisútvarpið.

„Fólk þarf að vita, fólk þarf að neyta upplýsinga og þú ert að skjóta sjálfan þig í fótinn ef þú drepur fréttastofurnar sem gera þetta svo vel sé,“ sagði hún enn fremur.

„Allir ættu að fara varlega, allir ættu að vera hræddir, allir ættu að velta því fyrir sér hvort þeir séu næstir.“ AFP/Khaled Desouki

Sæta ákærum stjórnvalda

Í september voru sex blaðamenn óháða miðilsins Matsda2sh – sem raunar var öll ritstjórnin – handteknir í húsleitum egypskra yfirvalda og haldið í einangrun án nokkurs sambands við umheiminn í tæpa viku.

Í kjölfarið hafa þeir sætt ákærum fyrir að ganga til liðs við hryðjuverkasamtökin Bræðralag múslima og fjármagna hryðjuverk. Greina lögmenn þeirra frá því að nokkrir þeirra hafi verið barðir og þeim gefið raflost í varðhaldi stjórnvalda. Engin sönnunargögn hafi verið lögð fram sem tengi þá við Bræðralagið.

Herinn steypti fyrrverandi forseta Egyptalands, Mohammed Morsi – sem naut stuðnings Bræðralags múslima – af stóli undir forystu Abdul Fattah al-Sisi í júlí 2013 eftir víðtæk mótmæli gegn honum. Undir stjórn al-Sisi, sem varð forseti árið eftir, var íslamistahreyfingin skilgreind sem hryðjuverkasamtök sem leiddi til víðtækra og harðra aðgerða gegn henni.

Skora á Egyptaland

Í fyrradag kallaði talsmaður Mannréttindastofnunar Sameinuðu þjóðanna, Thameen Al-Kheetan, eftir því að fréttamenn Matsda2sh yrðu tafarlaust látnir lausir og allar ákærur gegn þeim felldar niður. Sagði Al-Kheetan einnig að málið gegn Attalah vekti upp nýjar áhyggjur varðandi réttláta málsmeðferð og sanngjörn réttarhöld í Egyptalandi.

„Við skorum á Egyptaland að binda endi á hvers kyns áreitni gegn blaðamönnum og fjölmiðlum og virða og uppfylla réttinn til tjáningarfrelsis, þar á meðal réttinn til upplýsinga,“ sagði Al-Kheetan.

„Afturkalla verður þær aðgerðir sem gripið hefur verið til í því augnamiði að bæla niður áframhaldandi starf bæði Matsda2sh og Mada Masr. Íbúar Egyptalands eiga rétt á að lesa og heyra sjónarmið sem sett eru fram á þessum vettvangi um málefni sem varða almannahag,“ sagði hann enn fremur.

Marco Rubio ræddi málið ekki við Badr Abdelatty utanríkisráðherra Egyptalands í París á mánudaginn. AFP/Brendan Smialowski

Rubio ræddi það ekki

Um það er nú hvíslað að nýlegar lagalegar aðgerðir gegn blaðamönnum fylgi í kjölfar þess er bandaríska utanríkisráðuneytið féll frá mannréttindaskilyrðum vegna 320 milljóna dala hernaðaraðstoðar við Egyptaland í september, nokkuð sem gerði það kleift að greiða fjármunina út sem hluta af árlegum 1,3 milljarða dala hernaðaraðstoðarpakka Washington.

BBC spurði Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna nýverið hvort hann hefði rætt aðgerðir gegn óháðri blaðamennsku við utanríkisráðherra Egyptalands, Badr Abdelatty, á fundi þeirra um spennuna á svæðinu í París á mánudaginn.

„Við ræddum það ekki í dag,“ svaraði ráðherra. „En... eins og allt annað í utanríkisstefnu er þetta alltaf jafnvægislist til að efla þjóðarhagsmuni Bandaríkjanna. Og þegar upp er staðið hefur Egyptaland verið áreiðanlegur og góður samstarfsaðili Bandaríkjanna í varnarmálum,“ hélt hann áfram áður en að lokaorðum kom.

„Það þýðir ekki að maður sé sammála öllu sem önnur ríkisstjórn gerir,“ sagði Rubio og sló að lokum þann varnagla að hann væri ekki að tjá sig um blaðamenn Egyptalands.

BBC

The Guardian

France 24

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅