Appelsínugul viðvörun: Stórhríð í kortunum
Útlit er fyrir stórhríð annað kvöld. mbl.is/Rax
Útlit er fyrir stórhríð á Norðurlandi annað kvöld. Hafa appelsínugular og gular veðurviðvaranir verið gefnar út vegna veðursins.
Í tilkynningu Veðurstofu Íslands segir að í dag fari að snjóa á vestanverðu landinu og síðar einnig í öðrum landshlutum. Á láglendi vestantil breytist snjókoman í slyddu eða rigningu síðdegis, en austanlands verður áfram kalt og úrkomulítið fram eftir degi.
Á morgun, föstudag, versnar veður norðanlands. Gengur í vestan- og norðvestan 10–18 m/s með snjókomu síðdegis. Annað kvöld er útlit fyrir norðanstórhríð á Norðurlandi með vindhraða 18–25 m/s. Mun hægara og úrkomulítið verður suðaustantil.
Búast má við erfiðum akstursskilyrðum
Appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Norðurland vestra og eystra. Gul viðvörun er á Vestfjörðum og á miðhálendinu. Gular viðvaranir taka flestar gildi kl. 14 á morgun og á Norðurlandi verða þær appelsínugular kl. 20.
Viðvaranirnar falla svo úr gildi ein af annarri yfir nóttina og verða allar fallnar úr gildi kl. 9 á laugardagsmorgun.
Fólk sem hyggur á ferðalög, sérstaklega norðanlands á morgun, er hvatt til að fylgjast vel með veðurspám og viðvörunum. Búast má við erfiðum akstursskilyrðum þar sem hvassviðri og snjókoma fara saman.
内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗