Ein breyting á íslenska landsliðinu
Þorsteinn H. Halldórsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, hefur valið hóp sem mætir Portúgal í seinni umferð umspilsins fyrir HM 2027.
Leikirnir fara fram 1. desember ytra og 5. desember á Laugardalsvelli og takist Íslandi að slá Portúgal út tryggir liðið sér sæti í lokakeppni HM 2027. Keppnin fer fram að þessu sinni í Brasilíu dagana 24. júní – 25. júlí.
Ein breyting er á hópnum frá því í síðasta verkefni. Guðný Árnadóttir kemur inn í staðinn fyrir Emilíu Kiær Ásgeirsdóttur. Guðný er í hópnum í fyrsta skipti eftir að hún eignaðist sitt fyrsta barn fyrr á árinu.
Hópurinn:
Telma Ívarsdóttir - Víkingur R. - 12 leikir
Cecilía Rán Rúnarsdóttir - Inter Milan - 32 leikir
Fanney Inga Birkisdóttir - Vålerenga - 9 leikir
Hafrún Rakel Halldórsdóttir - Brøndby IF - 20 leikir, 1 mark
María Catharina Ólafsd. Gros - Djurgårdens IF FF - 3 leikir
Glódís Perla Viggósdóttir - FC Bayern München - 150 leikir, 14 mörk
Guðrún Arnardóttir - Hammarby IF - 65 leikir, 1 mark
Arna Eiríksdóttir - Vålerenga - 6 leikir, 2 mörk
Jelena Tinna Kujundzic - Þróttur R.
Líf Joostdóttir van Bemmel - Breiðablik - 1 leikur
Guðný Árnadóttir - Kristianstads DFF - 43 leikir
Alexandra Jóhannsdóttir - Kristianstads DFF - 67 leikir, 7 mörk
Katla Tryggvadóttir - AFC Fiorentina - 15 leikir, 1 mark
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir - Inter Milan - 66 leikir, 15 mörk
Ída Marín Hermannsdóttir - Hammarby IF - 11 leikir, 1 mark
Hildur Antonsdóttir - Newcastle United - 38 leikir, 2 mörk
Ásdís Karen Halldórsdóttir - AIK FF - 2 leikir
Birta Georgsdóttir - Parma Calcio 1913 S.R.L. - 3 leikir
Sveindís Jane Jónsdóttir - Angel City FC - 62 leikir, 16 mörk
Hlín Eiríksdóttir - Malmö FF - 62 leikir, 10 mörk
Diljá Ýr Zomers - Brann - 29 leikir, 4 mörk
Emelía Óskarsdóttir - HB Køge - 1 leikur
Thelma Karen Pálmadóttir - BK Häcken FF - 6 leikir, 1 mark
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗