Borgin ætlar að gefa 100 kjörkassa

Almenningur getur nálgast þá í Knarrarvogi eftir helgina.

Almenningur getur nálgast þá í Knarrarvogi eftir helgina. Ljósmynd/reykjavik.is

Mánudaginn 16. nóvember klukkan 13:00 býðst almenningi að koma í Knarrarvog 2, 104 Reykjavík, og sækja sér gamla kjörkassa.

Alls eru þetta yfir 100 kjörkassar og einstaklingar fá einungis einn kassa hver. Fyrstir koma, fyrstir fá, segir í tilkynningu á heimasíðu Reykjavíkurborgar.

Þetta eru kassar úr timbri sem notaðir hafa verið í áratugi og almenningur þekkir vel. Nú hafa nýir kjörkassar leyst þá eldri af hólmi, en þeir eru úr plasti og eru léttari og meðfærilegri en þeir gömlu, segir á heimasíðunni.

Með því að gefa gömlu kjörkassana til almennings öðlist þeir vonandi nýtt líf, því þeir séu til ýmissa hluta nytsamlegir.

Þá megi nota til dæmis fyrir kosningar í nemendafélög í skólum, sem leikmuni í leikriti eða kannski séu einstaklingar sem einfaldlega vilji eignast hluta úr kosningasögunni. Kassarnir eru misjafnir að útliti og sagðir í ágætu ásigkomulagi.

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅