Eru þetta jóladagatöl eða neyðarbirgðir?

Ístertur í tólf daga eða handgert sælgæti í 25 skúffum? Jóladagatölin taka á sig ýmsar myndir, eins og sjá má á þessum dagatölum frá Cowboy Creamery og Stick With Me í New York.

Einu sinni dugði lítill súkkulaðimoli til að stytta biðina eftir jólunum. Nú geta jóladagatöl innihaldið niðursoðinn fisk, súrar gúrkur, prótínduft og jafnvel kreatín. Sá sem vill telja niður með ís þarf hins vegar að koma dagatalinu fyrir í frystinum.

Þetta er meðal þess sem blaðamaðurinn Pete Wells fjallar um í nýrri grein í The New York Times. Þar lýsir hann því hvernig jóladagatalið hefur þróast úr einföldu pappaspjaldi með myndum á bak við lúgurnar í fjölbreytta gjafavöru fyrir fólk með ólíkan smekk.

Og það er greinilega hægt að telja niður til jóla án þess að borða einn einasta súkkulaðimola.

Niðursoðinn fiskur fyrir jólin

Meðal þess sem vekur athygli er tólf daga jóladagatal frá Fishwife, sem selur niðursoðinn fisk í litríkum umbúðum. Dagatalið kostar 150 Bandaríkjadali, eða um 18.400 krónur. Í hólfunum leynast meðal annars fiskdósir, fiskhnífur og lítil flaska af Tabasco-sósu.

Þeir sem kjósa súrt geta valið dagatal frá GiveThemBeer með gúrkuþema. Þar leynast meðal annars frostþurrkaðar dillgúrkuflögur.

Fæðubótarefnafyrirtækið Naked Nutrition fer aðra leið. Í dagatali þess má finna kreatín, kollagen, mysuduft og súkkulaðibragðbætt ertuprótín. Desember þarf því ekki að raska öllum venjum líkamsræktarfólks.

Dagatalið fer í frystinn

Kaffi, ostur og áfengi hafa einnig ratað í jóladagatölin. Sum innihalda espressóhylki, önnur bjór, tekíla eða kokteila í dósum.

En ekki er hægt að hengja þau öll upp í stofunni. Ostadagatal frá Murray’s á heima í ísskápnum og Cowboy Creamery býður upp á 24 daga ísdagatal sem er sent með þurrís og þarf að geyma í frysti.

Gæludýrin fá líka sitt. Hundar geta fengið sérstakt dagatal með hundanammi og kexi en í kattadagatali frá Trader Joe’s leynist frostþurrkað laxanasl.

Dýrari umbúðir utan um niðurtalninguna

Samkvæmt áætlun rannsóknarfyrirtækisins Growth Market Reports, sem Wells vísar til, nam heimsmarkaður jóladagatala 2,6 milljörðum Bandaríkjadala árið 2025, eða ríflega 319 milljörðum króna miðað við miðgengi Seðlabankans 10. nóvember.

Dagatölin eru þó ekki endilega hagkvæmasta leiðin til að kaupa innihaldið. Wells nefnir sem dæmi dagatal frá Bonne Maman með 24 smákrukkum af sultu og öðru góðgæti á 56 dali eða um 6.900 krónur. Fyrirtækið selji einnig venjulegan pakka með 30 smákrukkum á 34 dali, eða um 4.200 krónur. 

Hluti verðsins liggur því í umbúðunum og upplifuninni af því að opna nýtt hólf á hverjum degi.

Hjá sælgætisgerðinni Stick With Me í New York kostar dagatalið 238 dali eða 29.200 krónur. Það er búið 25 skúffum með handgerðu sælgæti og myndskreytt af Ericu Dorn, sem hefur unnið við kvikmyndir Wes Anderson.

Fyrir þá sem sakna einfaldleikans eru gömlu myndadagatölin þó enn til. Þau hafa að minnsta kosti þann kost að þurfa hvorki ísskáp né frysti.

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅