Faðir Bryndísar Klöru sendi banamanni hennar skilaboð á meðan á réttarhöldunum stóð
Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 12. nóvember 2026 11:37
Bryndís Klara Birgisdóttir
Birgir Karl Óskarsson, faðir Bryndísar Klöru sem lést árið 2024 í kjölfar fólskulegrar árásar á Menningarnótt, segist ekki lengur vera reiður út í banamann dóttur sinnar en hann hefur þó ekki fyrirgefið honum. Þetta kom fram í Segðu mér á Rás 1 í morgun.
Þinghald í málinu var lokað og Birgi var því ekki heimilt að vera viðstaddur þegar banamaðurinn svaraði til saka. Birgi þótti þó mikilvægt að fá að vita öll smáatriði málsins svo lögmaður hans fékk það í gegn að Birgir fengi að horfa á upptökur í þinghúsinu.
„Á meðan á þessum réttarhöldum stóð sá ég hversu hrottalegt þetta var í rauninni og gerði mér grein fyrir því að það hjálpar ekkert að vera reiður. Þannig ég svona hálfpartinn skila reiðinni og sendi þau skilaboð í gegnum lögmanninn hans að ég sé ekkert reiður.“
Hann hefur þó ekki fyrirgefið, en óskar banamanninum einskis ills.
Röð áfalla
Bryndís Klara var flutt á gjörgæsludeild eftir hnífstunguna á Menningarnótt og lést sex dögum síðar, aðeins 17 ára gömul. Birgir bendir á að þessa sex daga hafi hann misst dóttur sína aftur og aftur.
„Það eru kannski ekki margir sem gera sér grein fyrir því, en þetta eru sex dagar og í raun er þetta ekki bara eitt skipti þar sem við missum hana, þetta er röð áfalla.“
Fyrst kom áfallið að Bryndís væri í lífshættu á sjúkrahúsi. Óvissan var á þessum tíma mikil. Næsta áfall var að frétta hvað hafði átti sér stað á Menningarnótt. Bryndís fór í aðgerð og fór þar í hjartastopp og svo aftur síðar á sunnudeginum, og svo aftur eftir það. Hún var flutt á Hringbraut þar sem henni var haldið lifandi með aðstoð véla. Þar virtist birta til. Bryndísi fór að ganga betur. Á miðvikudeginum kom enn eitt áfallið þegar fyrstu einkenni komu fram um heilaskaða sem hún hafði orðið fyrir. Hún lést svo á föstudeginum.
„Þetta er röð áfalla þar sem við missum hana, fáum von, missum hana, fáum von.“
Draumurinn um gamalt timburhús í miðbænum
Andlát Bryndísar hafði mikil áhrif á íslensku þjóðina og Birgir lýsir því sem svo að okkar litla land hafi í raun minnkað niður í eina fjölskyldu á þessum tíma, svo mikil var samhugurinn og samstaðan. Margir vildu leggja sitt af mörkum og þannig vaknaði hugmyndin um að stofna Minningarsjóð. Greint var frá því í febrúar að Minningarsjóður Bryndísar Klöru yrði fjárhagslegur bakhjarl sérhæfðrar ofbeldis- og áfallamóttöku innan Landspítalans. Móttakan hefur fengið nafnið Bryndísarhlíð. Starfseminni var fundinn staður í gamla Kennaraskólanum að Laufásvegi 81. Um er að ræða rúmlega aldargamalt hús með langa sögu.
Birgir segir að húsið sé gríðarlega fallegt og staðsetningin sé táknræn. Húsið er um 50 metrum frá staðnum þar sem Bryndís Klara fæddist og um 100 metrum frá staðnum þar sem hún lést. Séra Guðni Már Harðarson lýsti því í minningarorðum í útför Bryndísar að hún hafi sagt við vinkonur sínar á Menningarnótt að hún ætlaði í framtíðinni að búa í gömlu timburhúsi í miðbænum. Þegar lagt var til að Laufásvegur yrði fyrir valinu hnippti Birgir í Guðna Má, sem situr í stjórn sjóðsins, og benti á að þarna væri það komið, gamla timburhúsið sem Bryndísi dreymdi um.
Nefnir Birgir annað sem honum þykir táknrænt. Á meðan Bryndís barðist fyrir lífi sínu á Landspítalanum nutu foreldrarnir aðstoðar séra Hjördísar Perlu Rafnsdóttur sjúkrahúsprests. Birgir hafði íhugað að afþakka slíka aðstoð en lét til leiðast og sá ekki eftir því.
„Það stafar svo mikil hlýja af henni og þessi manneskja vék ekki frá okkur fyrsta sólarhringinn og hún deildi með okkur örvæntingunni og hjálpaði okkur.“
Félagi Birgis úr karlakórnum Fóstbræðrum benti Birgi síðar á að íslenskur texti í laginu Minning, sem var flutt í útför Bryndísar, er eftir móður Hjördísar, Ingibjörgu Gunnarsdóttur.
„Ég fékk bara gæsahúð sko“
Fóstbræður verða með tvenna tónleika í Langholtskirkju á laugardaginn til minningar um Bryndísi Klöru. Allur ágóði tónleikanna rennur beint í minningarsjóðinn.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗