Skiptir mjög miklu máli
„Ég er mjög spenntur og hlakka til að spila á móti þeim,“ sagði Lúkas Petersson, markvörður U21 árs landsliðs Íslands í fótbolta, í samtali við mbl.is.
Ísland mætir Grikklandi í umspili um sæti á lokamóti EM U21 árs landsliða. Fyrri leikurinn er á Þróttarvelli í dag klukkan 13.
„Þeir hafa verið góðir og maður hefur heyrt frá Þjóðverjunum að þeir hafi átt í erfiðleikum með þá. Þetta verður því erfitt verkefni, en við hlökkum mjög til.
Svo förum við til Grikklands, klárum þennan riðil og vonandi komumst við á EM,“ sagði Lúkas sem er spenntur fyrir tilhugsuninni um að fara á lokamót.
„Það myndi skipta mjög miklu máli. Ég var á EM með U19 ára landsliðinu ásamt mörgum strákanna sem eru hér núna. Það væri mjög stórt að komast aftur á stórmót með þessum hópi. Ég er mjög jákvæður og hef trú á að við náum því,“ sagði Lúkas.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗