„Allt hrundi og allir öskruðu“
„Allt hrundi og allir öskruðu,“ segir Melissa Orna, sem var stödd nærri þriggja hæða íbúðarhúsi þegar það hrundi í Brooklyn í New York í gær.
Borgarstjórinn segir aðstæður við björgun afar erfiðar vegna óstöðugra rústa og hættulegra holrýma undir þeim.
Að minnsta kosti tveir létust og 17 slösuðust, þar af sjö börn. Fjórir eru alvarlega slasaðir, að sögn Lillian Bonsignore, yfirmanns slökkviliðs New York. Leit að fólki í rústunum stóð enn yfir í morgun.
Húsið hrundi skömmu eftir klukkan fjögur síðdegis að staðartíma í gær, eða um kl. 21 að íslenskum tíma í gærkvöldi, nærri gatnamótum Bedford Avenue og Flatbush Avenue í Flatbush-hverfinu. Það féll ofan í byggingargryfju á aðliggjandi lóð, þar sem gröftur stóð yfir, að því er The New York Times greinir frá.
Óttast um ástvini í rústunum
Um 250 slökkviliðs- og björgunarmenn unnu klukkustundum saman við leit og björgun. Ekki er vitað hversu margir voru í húsinu þegar það hrundi og að sögn slökkviliðsins gæti leitin staðið í marga daga.
Fólk safnaðist saman í nágrenninu og beið frétta af ástvinum sem það óttaðist að væru fastir í rústunum, að því er segir í umfjöllun The New York Times.
Zohran Mamdani, borgarstjóri New York, sagði aðstæður hafa breyst hratt og verið afar erfiðar. Björgunarfólk þyrfti að fara um óstöðugar rústir og undir þeim væru hættuleg holrými.
Hann sagði byggingaryfirvöld og lögreglu myndu fara fyrir rannsókn á orsök hrunsins.
„Allt húsið fór að skjálfa“
Orna, sem er 53 ára, var að skutla dóttur sinni á hárgreiðslustofu í nágrenninu þegar hún heyrði húsið hrynja.
„Allt hrundi og allir öskruðu,“ sagði hún. „Allt húsið fór að skjálfa og svo hrundi það bara.“
Við hrunið rifnaði veggur af aðliggjandi þriggja hæða húsi. Eftir það blöstu stigi, svefnherbergi og skápar við utan frá.
Emmanuella Carilus, 32 ára íbúi í hverfinu, var enn að átta sig á atburðunum þegar hún fór út í göngutúr seint um kvöldið.
„Ég var í áfalli, mér var brugðið,“ sagði hún. „Ég bý beint fyrir aftan húsið. Það heyrðist eins og mikil sprenging og svo heyrðist fjöldi fólks öskra.“
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


