Christopher Nolan á Íslandi
Kvikmyndaleikstjórinn Christopher Nolan vakti mikla lukku hjá aðdáanda sem rakst á hann í Reykjavík. Samsett mynd/Skjáskot/Instagram
Ljósmyndarinn og efnishöfundurinn Alex Michael Green Svansson átti erfitt með að halda ró sinni þegar kvikmyndaleikstjórinn Christopher Nolan gekk fram hjá honum í Reykjavík.
Alex, sem er þekktur undir nafninu Alex from Iceland, greinir frá kynnum sínum af leikstjóranum í færslu á Instagram.
Hann greinir frá því að Nolan hafi gengið fram hjá honum í Reykjavík og leynir ekki gleði sinni yfir því að hafa rekist á uppáhaldsleikstjóra sinn.
Myndskeiðið hefur vakið mikla athygli en þegar þetta er skrifað hafa ríflega 17 þúsund manns líkað við það.
Skrúfaði niður rúðuna og kallaði
„Ég endaði á að fara á taugum, skrúfa niður rúðuna og kalla til hans: Ég er mikill aðdáandi! Hann leit á mig og sagði: takk, takk,“ segir Alex á ensku í myndskeiðinu.
Í texta við færsluna gerir hann góðlátlegt grín að eigin viðbrögðum.
„Ég: Alveg rólegur í kringum frægt fólk. Líka ég, þegar Christopher Nolan gengur fram hjá mér í Reykjavík,“ skrifar Alex.
„Hann hefur verið uppáhaldsleikstjórinn minn frá því ég man eftir mér. Að segja að þetta hafi verið óraunverulegt nær ekki einu sinni utan um það.“
Kunnugur Íslandi
Nolan er meðal þekktustu kvikmyndaleikstjóra samtímans og á meðal annars að baki myndirnar Inception, Interstellar og Oppenheimer, auk Batman-þríleiksins með Christian Bale í aðalhlutverki.
Ísland er honum ekki framandi enda hafa tökur á myndum hans, þar á meðal Interstellar og The Odyssey, farið fram hér á landi.
内容来自 Mbl.is - Fólkið - Fólk,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
