Rannsökuðu moskur í Svíþjóð með földum myndavélum – Afhjúpanirnar hafa vakið mikil viðbrögð
Ritstjórn DV
Fimmtudaginn 12. nóvember 2026 11:30
Myndir: Skjáskot af vef SVT
Rannsókn sænska ríkissjónvarpsins SVT hefur leitt í ljós að nokkrir ímamar í Svíþjóð eru tilbúnir að aðstoða gifta karlmenn við að ganga í trúarlegt hjónaband með annarri konu, þótt sænsk lög heimili ekki fjölkvæni.
Einn ímamanna ráðlagði jafnframt manni að hafa stjórn á samskiptum eiginkonu sinnar og barna og koma í veg fyrir að börnin umgengjust sænska vini.
Þetta kemur fram í rannsókn fréttaskýringaþáttarins Uppdrag granskning á SVT sem sýndur var í gærkvöldi. Við rannsóknina voru notaðar faldar myndavélar til að kanna viðhorf trúarleiðtoga til fjölkvænis.
Níu buðu fram aðstoð
Við rannsóknina voru menn sendir til að ræða við ímama víðs vegar um Svíþjóð. Þeir sögðust þegar vera kvæntir en vildu ganga í hjónaband með annarri konu og spurðu hvort ímamarnir væru tilbúnir að framkvæma trúarlega hjónavígslu.
Alls leituðu rannsóknarblaðamenn SVT til 15 moska. Í níu tilvikum buðust ímamar eða trúarlegir ráðgjafar til að aðstoða við slíka hjónavígslu eða vísuðu mönnunum á aðra sem gætu framkvæmt athöfnina. Í sex moskum var beiðninni hafnað.
SVT bendir á að óopinberar trúarlegar hjónavígslur af þessu tagi hafi ekki lagalegt gildi í Svíþjóð. Þær stofna því ekki til lögformlegs hjónabands og veita konunum ekki þau réttindi sem fylgja hjúskap.
Vildi halda börnunum frá sænskum vinum
Í mosku í miðborg Halmstad voru tveir ímamar tilbúnir að aðstoða við slíka hjónavígslu.
Annar þeirra gekk þó enn lengra í ráðleggingum sínum. Samkvæmt SVT sagði hann að eiginmaður hefði rétt til að stjórna því við hverja eiginkona hans og börn hefðu samskipti.
Hann gaf jafnframt ráð um hvernig maðurinn gæti komið í veg fyrir að börnin umgengjust sænska vini.
Ummælin náðust á upptöku og eru hluti af umfangsmikilli rannsókn SVT á afstöðu trúarleiðtoga til fjölkvænis.
Hótaði aðgerðum gegn sjónvarpsstöðinni
Blaðamenn SVT leituðu eftir viðbrögðum beggja ímamanna í Halmstad en hvorugur vildi koma í viðtal.
Annar þeirra hafnaði því skriflega að hafa gert nokkuð rangt og sagðist ætla að grípa til aðgerða gegn sjónvarpsstöðinni ef upptakan af samtalinu yrði birt.
Hinn ímaminn svaraði hvorki símtölum né smáskilaboðum frá fréttamönnum.
Sá fyrrnefndi starfar ekki lengur við moskuna.
Stjórn moskunnar í Halmstad sendi frá sér yfirlýsingu á miðvikudagskvöld þar sem hún tók afstöðu gegn ummælum ímamsins og sagði þau ekki samræmast gildum og stefnu moskunnar. Þá kom fram að samstarfi við hann hefði verið slitið.
Sænsk stjórnvöld bregðast við
Rannsókn SVT hefur einnig orðið til þess að sænska stofnunin MUCF, sem meðal annars fer með samræmingu málefna sem varða trúfélög og félagasamtök, hefur ákveðið að kanna hvort trúfélögin uppfylli skilyrði fyrir opinberum styrkjum. Moskan í Halmstad er þó ekki meðal þeirra trúfélaga sem nú þiggja slíka styrki.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗