Bíl ekið á vegrið á Hafnarfjarðarvegi

Ekki fengust upplýsingar um ástand ökumannsins.

Umferðarslys varð fyrir skömmu á Hafnarfjarðarvegi, rétt fyrir ofan Nýbýlaveg, þegar bíll sem ók í átt til Reykjavíkur lenti á vegriði. 

Ökumaðurinn var einn í bílnum, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Ekki fengust hins vegar upplýsingar um hvort slysið hefði verið alvarlegt eða um ástand ökumannsins.

Sjúkrabíll var sendur á vettvang, ásamt dælubíl, öryggisins vegna, að sögn Guðjóns Ingasonar, varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. 

Spurður hvort ökumaður hefði verið fluttur af vettvangi með sjúkrabíl segir Guðjón viðbragðsaðila enn vera á vettvangi að meta aðstæður.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅