Amaroq hagnaðist um 2,1 milljarð
Hagnaður námufélagsins Amaroq nam 24,4 milljónum kanadadala, jafnvirði um 2,1 milljarðs króna, á þriðja ársfjórðungi ársins.
Á sama tímabili í fyrra var félagið rekið með 5,3 milljóna kanadadala tapi, sem jafngildir um 458 milljónum króna.
Tekjur félagsins námu 65,4 milljónum kanadadala, eða um 5,6 milljörðum króna, samanborið við 12,8 milljónir kanadadala á þriðja ársfjórðungi í fyrra. Tekjurnar rúmlega fimmfölduðust því milli ára.
Þetta kemur fram í uppgjöri félagsins sem birt var í morgun. Gullframleiðsla jókst verulega milli ára og var í samræmi við áætlanir. Framleiðslu- og kostnaðarspá ársins er óbreytt.
Gullframleiðsla jókst um 260%
Gullframleiðsla í Nalunaq-námu félagsins á Grænlandi nam um 12.600 únsum á fjórðungnum, samanborið við um 3.500 únsur á sama tímabili í fyrra. Það jafngildir um 260% aukningu.
Félagið seldi alls 11.068 únsur af gulli á fjórðungnum, samanborið við 2.636 únsur ári áður. Meðalsöluverð var 4.184 Bandaríkjadalir á únsu, jafnvirði um 514 þúsund króna, en var 3.499 Bandaríkjadalir á sama tímabili í fyrra.
Framlegð nam 45,6 milljónum kanadadala, eða um 3,9 milljörðum króna, samanborið við 5,9 milljónir kanadadala, jafnvirði um 510 milljóna króna, ári áður.
Alls voru unnin 19.316 tonn af málmgrýti á fjórðungnum. Meðalgullinnihald þess var 23,6 grömm í tonni og heimtur gulls í vinnslunni námu 84%.
Hagnaður á níu mánuðum 3,3 milljarðar
Hagnaður fyrstu níu mánaða ársins nam 38 milljónum kanadadala, jafnvirði um 3,3 milljarða króna. Á sama tímabili í fyrra nam tapið 15,4 milljónum kanadadala, eða um 1,3 milljörðum króna.
Tekjur fyrstu níu mánaðanna námu 121,6 milljónum kanadadala, jafnvirði um 10,5 milljarða króna, samanborið við 16,3 milljónir kanadadala, eða um 1,4 milljarða króna, á sama tímabili í fyrra.
Handbært fé nam 51,5 milljónum kanadadala í lok september, jafnvirði um 4,4 milljarða króna. Til samanburðar nam það 28,5 milljónum kanadadala, eða um 2,5 milljörðum króna, í lok júní.
Heildareignir námu 469,3 milljónum kanadadala í lok september, jafnvirði um 40,5 milljarða króna. Eigið fé nam 319,7 milljónum kanadadala, eða um 27,6 milljörðum króna.
Gullinnihald umfram væntingar
Eldur Ólafsson, forstjóri Amaroq, segir í tilkynningunni að aukin gullframleiðsla og hagstætt gullverð hafi stutt við afkomuna.
„Gullframleiðsla í fjórðungnum var í samræmi við áætlanir og félagið skilaði góðri afkomu og sterku sjóðstreymi. Við höfum aukið gullframleiðslu okkar samhliða hagstæðum verðum á gullmarkaði,“ segir Eldur í tilkynningunni.
Hann segir gullinnihald í Nalunaq-námunni hafa verið umfram væntingar og numið tæplega 24 grömmum í tonni á fjórðungnum. Samhliða hafi félagið staðið fyrir umfangsmiklum rannsóknum í sumar og borað rúmlega 6.000 metra á rannsóknarsvæðum sínum.
Stefna á miðbik framleiðsluspár
Gullframleiðsla fyrstu níu mánaða ársins nam um 21.600 únsum. Meðalgullinnihald málmgrýtisins sem fór til vinnslu á tímabilinu var 21,6 grömm í tonni, samanborið við áætluð 14 til 15 grömm.
Að sögn félagsins hefur framleiðsla á fjórða ársfjórðungi verið í samræmi við væntingar. Áfram er gert ráð fyrir að framleiðslan verði á bilinu 25 til 35 þúsund únsur á árinu og væntir félagið þess að hún verði nálægt miðbiki þess bils.
Unnið er að umbótum á námu- og vinnsluaðstöðu í Nalunaq með það að markmiði að bæta framleiðni og hagkvæmni á næsta ári. Þá er niðurstaðna úr borunum á rannsóknarsvæðunum Nanoq, Ilua og Minturn að vænta á fjórða ársfjórðungi þessa árs og fyrsta ársfjórðungi næsta árs.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗