Teppan hafði áhrif á sjúkrabíl í forgangsakstri
„Við þurftum aðeins að bregða út af leið bara út af lokunum þarna,“ segir varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Eyþór
Sjúkrabíll í forgangsflutningi varð að bregða út af leið í síðdegisumferðinni í gær. Mikil umferð myndaðist vegna fræsingar og malbikunar á rampi sem nær af Bústaðarvegi niður á Kringlumýrarbraut/Hafnarfjarðarveg til suðurs.
„Við þurftum aðeins að bregða út af leið bara út af lokunum þarna,“ segir Guðjón Ingason, varðstjóri hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is.
„Hann var lokaður rampurinn niður á Kringlumýrarbraut frá Bústaðavegi í suðurátt þannig að við þurftum að fara Hamrahlíðina inn á Kringlumýrarbraut.“
Aðspurður segir hann áhrifin á neyðarakstur gærdagsins blessunarlega ekki hafa verið mikil.
„Þetta var bara einn forgangsflutningur sem þurfti að fara þarna í gegn þannig að það hafði ekki mikil áhrif.“
Fyrirhugaðar voru áframhaldandi malbiksviðgerðir í dag, annars vegar á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Laugavegar og hins vegar á rampinum við Bústaðaveg niður á Kringlumýrarbraut, en þeim hefur verið frestað vegna veðurs þar sem snjór féll á höfuðborgarsvæðinu í morgun.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗