Carrick vildi þessa fjóra en fékk engan - Telur að Ratcliffe þurfi að útskýra sitt mál

Helgi Fannar Sigurðsson

Fimmtudaginn 12. nóvember 2026 11:15

Elliot Anderson, Tino Livramento og Morgan Rogers. Getty Images

Michael Carrick, sem var rekinn frá Manchester United í morgun, óskaði eftir því að kaupa fjóra tiltekna leikmenn í sumar en fékk engan þeirra. Blaðamaðurinn Henry Winter greinir frá þessu.

Carrick vildi fá Elliot Anderson, Morgan Rogers, Lewis Hall og Mateus Fernandes til félagsins en Sir Jim Ratcliffe, einn eigenda United, ákvað að takmarka fjármuni til leikmannakaupa.

Anderson gekk til liðs við Manchester City, Rogers fór til Chelsea og Fernandes samdi við Tottenham. Hall varð áfram hjá Newcastle.

Winter telur að Ratcliffe þurfi að útskýra hvers vegna ekki var farið eftir óskum Carrick.

Mauricio Pochettino er talinn líklegur arftaki Carrick á Old Trafford. United hefur aðeins unnið einn af tíu deildarleikjum sínum á leiktíðinni.

Fleiri fréttir

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅