Fór til City til að hefna sín á Sir Alex
Carlos Tevez, fyrrverandi framherji argentínska landsliðsins í knattspyrnu, segir að félagaskipti sín frá Manchester United til Manchester City árið 2009 hafi verið knúin áfram af hefnd eftir að knattspyrnustjórinn Alex Ferguson stóð ekki við loforð um að semja við hann til frambúðar.
„Ég held að Ferguson hafi haft allt að sex mánuði, frá þeim degi sem við ræddum saman, til að standa við orð sín. Og hann gerði það ekki,“ sagði Tevez í þættinum Rio Ferdinand Presents.
Tevez fullyrti að Ferguson hefði síðan sett hann á bekkinn til að lækka verðmiðann á honum. „Og það er það sem særði mig mest.“
Hann vann tvo Englandsmeistaratitla og Meistaradeildina á tveggja ára lánstíma sínum hjá United.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Enski boltinn,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗