Þrengt niður í eina akrein vegna malbiksviðgerða

Innlent | mbl | 12.11.2026 | 6:48 | Uppfært 10:38

Umferð á Kringlumýrarbraut.

Umferð á Kringlumýrarbraut. mbl.is/Kristinn Magnússon

Í dag frá kl. 11 til 13 eru fyrirhugaðar malbiksviðgerðir við gatnamót Kringlumýrarbrautar og Laugavegar í suðurátt og verður þrengt niður í eina beygjurein.

Höggpúðabílar verða við vinnusvæðið til að beina umferð, að því er segir á vef Vegagerðarinnar.

Í dag frá kl. 11 til 15 verður lokað fyrir umferð af Bústaðavegi inn á rampinn niður á Kringlumýrarbraut. Búast má við umferðartöfum og eru vegfarendur beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅