Kona varð fyrir heiðursofbeldi á Íslandi af því hún klæddist stuttermabol
Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, spyr hvort breyta þurfi lögum á Íslandi vegna heiðursofbeldis. Í aðsendri grein í Morgunblaðinu rifjar hún upp að slík mál hafi verið til meðferðar í dómstólum hér á landi og verið til umfjöllunar í fjölmiðlum.
Heiðurstengt ofbeldi beinist gegn konum innan fjölskyldu þeirra, þar sem þær eru sakaðar um að spilla heiðri fjölskyldunnar með meintu ósiðlegu athæfi, eða eins og Diljá á skrifar:
„Heiðurstengt ofbeldi er ofbeldi sem er beitt í því skyni að verja eða endurreisa ímyndaðan heiður fjölskyldu eða annars samfélagshóps, oft í tengslum við kynhegðun, klæðaburð eða makaval. Ofbeldið beinist iðulega gegn konum og er útbreitt í Mið-Austurlöndum og Suður-Asíu. Þaðan hefur það svo borist um allan heim með fólksflutningum.“
Diljá segir að glæpir af þessu tagi hefðu fyrir skömmu virst óhugsandi á Íslandi en séu nú orðinn blákaldur veruleiki. Hún bendir á að stúlka hafi orðið fyrir ofbeldi vegna þess að hún klæddist stuttermabol:
„Fjölskyldufaðir palestínskrar fjölskyldu var þannig sakfelldur, en hann sagði lögreglu að þeir synir hans væru löngu búnir að „slátra“ dóttur hans ef þau byggju í „Arabalandi“. Ágreiningur hafði risið í fjölskyldunni, sem er búsett hér á landi, eftir myndbirtingu af fórnarlambinu, dótturinni, í stuttermabol sem fjölskyldan taldi vera ósæmilega hegðun.“
Spyr hvort breyta þurfi lögum
Diljá bendir á að heiðurstengt ofbeldi sé orðið staðreynd á Íslandi og grípa þurfi til fyrirbyggjandi aðgerða gegn því. Hún hefur tekið upp málið á Alþingi og beint þeirri fyrirspurn til dómsmálaráðherra hvort ástæða sé til að gera breytingar á lögum til að bregðast við heiðursofbeldi. Hún bendir á að á Norðurlöndunum hafi ofbeldi af þessu tagi oft endað með dauðsföllum.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗