Nýjar fréttir af litla drengnum sem fannst grafinn lifandi

Faðir ellefu mánaða drengs, sem fannst á lífi eftir að hafa verið grafinn í jörðu inni í hundabúri í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum, hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps.

Lögregla telur að drengurinn hafi verið grafinn í jörðu í um sólarhring áður en honum var bjargað. DV greindi frá málinu í gær en nýjar upplýsingar hafa nú komið fram um líðan drengsins, aðdraganda málsins og rannsókn lögreglu.

Sjá einnig: Ellefu mánaða drengur fannst grafinn lifandi – Ótrúlegt að hann hafi lifað af

Faðirinn, Michael Comer, 25 ára, hefur verið ákærður fyrir tilraun til manndráps, brot gegn barni, brot á forsjárrétti og innbrot.

Þetta kemur fram í umfjöllun NBC News sem vísar til upplýsinga frá lögreglu.

Hótanir í garð móðurinnar

Samkvæmt lögregluskýrslu hafði móðir drengsins, sem fer með forsjá hans, leyft föðurnum að hafa hann hjá sér í stuttan tíma. Hún hafði gert ráð fyrir að það yrði í einn eða tvo daga.

Móðirin greindi lögreglu jafnframt frá því að Comer hefði hótað henni í skilaboðum á Facebook Messenger að halda drengnum hjá sér.

Drengurinn, sem heitir Koah Sharp, hvarf á mánudag og hófst þá umfangsmikil leit. Faðir hans var handtekinn um kvöldið vegna gruns um innbrot en ekkert var þá vitað um afdrif barnsins.

Það var ekki fyrr en síðdegis á þriðjudag sem leitarmenn fundu drenginn grafinn í skóglendi skammt frá heimili föðurafa hans.

Gráturinn leiddi til björgunarinnar

Leitarmenn höfðu komið auga á ummerki um nýlegt jarðrask og þegar þeir hófu að grafa heyrðu þeir í drengnum gráta.

Drengurinn reyndist vera inni í búri sem hafði verið vafið inn í handklæði og grafið í jörðu.

Bryan Koon, lögreglustjóri í Lexington-sýslu, telur að handklæðið hafi hugsanlega myndað loftrými sem gerði barninu kleift að anda. Svalt veður gæti einnig hafa átt þátt í því að drengurinn lifði af.

Að sögn lögreglu er búist við að Koah nái sér að fullu. Hann hefur þegar verið útskrifaður af sjúkrahúsi og er nú í umsjá móður sinnar.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

把喜欢的内容,留在你的新标签页。

打开我的订阅