United staðfestir tíðindin
Manchester United hefur formlega staðfest þau tíðindi frá því í morgun um að búið sé að láta Michael Carrick fara sem knattspyrnustjóra.
Carrick hefur verið undir gríðarlegri pressu vegna slæms gengis liðsins sem er í fallsæti ensku úrvalsdeildarinnar. United hefur aðeins unnið einn af fyrstu tíu deildarleikjum tímabilsins.
Allt bendir til þess að Mauricio Pochettino, fyrrum stjóri Tottenham og Chelsea, sé að taka við liðinu. United hefur ekki staðfest það en má búast við því fljótlega þar sem félagið hefur tilkynnt um brottför Carrick.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗