Vörður skammaði Hegseth við helga gröf
Bandarískur hervörður sást ávíta Pete Hegseth varnarmálaráðherra og fylgdarlið hans hástöfum á degi uppgjafahermanna í gær, eftir að þau hlógu og spjölluðu nálægt helgri gröf í Arlington-þjóðargrafreitnum.
Myndskeið sem fór víða á bandarískum sjónvarpsstöðvum og samfélagsmiðlum sýndi Hegseth og hóp, sem að sögn innihélt háttsetta ráðgjafa hans, safnast saman til að taka myndir við gröf óþekkta hermannsins, eftir athöfn á degi uppgjafahermanna þar sem Donald Trump forseti var viðstaddur.
„Allir gestir skulu ávallt viðhalda þögn og virðingu!“ hrópaði varðmaður úr Bandaríkjaher hátt, eftir að hlátur og skvaldur heyrðist.
Gröf óþekkta hermannsins er helgur grafreitur bandarískra hermanna sem féllu í fyrri heimsstyrjöldinni, seinni heimsstyrjöldinni og Kóreustríðinu. Þar er einnig tóm gröf fyrir hermann úr Víetnamstríðinu, til heiðurs týndum hermönnum sem létust í þjónustu við land sitt.
CNN greindi frá því að í hópnum sem tók myndir með Hegseth á tröppunum nálægt gröfinni hefðu verið eiginkona hans, Jennifer, starfsmannastjórinn Ricky Buria, aðstoðarstarfsmannastjórinn Patrick Weaver og háttsetti ráðgjafinn Tami Radabaugh.
Frá vinstri: Hershöfðinginn Dan Caine,Jennifer Hegseth, eiginkona Hegseth og Pete Hegseth við athöfnina í gær. AFP/Kevin Dietsch
Sean Parnell, aðaltalsmaður bandaríska varnarmálaráðuneytisins, Pentagon, sagði við NBC News að Hegseth og ráðuneytið „hefðu alltaf heiðrað“ fórnir hersins.
„Á meðan þessa hátíðlega dags var minnst minnti hermaður alla réttilega og af virðingu á að gæta tilhlýðilegrar framkomu,“ sagði Parnell.
Demókratar voru fljótir að bregðast við axarskafti varnarmálaráðherrans á þessum helga degi.
„Pete Hegseth heldur áfram að sýna að hann er algjörlega óhæfur til að gegna embætti sínu. Degi eftir að hafa naumlega sloppið við embættismissiskæru sýnir hann fyrirlitningu sína á körlum okkar og konum í einkennisbúningi með því að vanvirða helgi grafar óþekkta hermannsins,“ skrifaði þingkonan Gwen Moore frá Wisconsin á X.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
